Fara í efni
Menning

Griðastaður hjá þeim sem er auðvelt að elska

Tónlistarkonan Fanney Kristjáns sem kemur fram undir nafninu Kjass hefur vakið athygli fyrir söng sinn, tónsmíðar og tónlistarmyndbönd síðustu ár. Árið 2016 útskrifaðist hún sem jazzsöngkona frá Tónlistarskóla FÍH og hefur síðan verið búsett á Akureyri. Fanney hefur verið dugleg að glæða tónlistarsenu bæjarins lífi, henni er einnig umhugað um að styðja við aðrar konur og vekja athygli á þeirra framlagi; meðal verkefna hennar er plata með lögum eftir Elísabetu Jónsdóttur tónskáld frá Grenjaðarstað í Aðaldal ásamt heimildarmynd sem segir sögu hennar en Elísabet var ein fyrsta íslenska konan til að fá lög eftir sig birt á prenti á 19. öld. Þessi heimildarmynd verður sýnd á RÚV næsta haust.

Á dögunum kom út nýjasta lag Fanneyjar sem verður á annarri sólóplötu hennar. Lagið Easy, sem fellur á milli jazz og popp, fjallar um ástina og hvað það er gott að finna griðastað hjá þeim sem auðvelt er að elska, þar sem hreinleiki og traust ráða ríkjum. „Þegar ég syng Easy geng ég inn í hjartað mitt þar sem ég upplifi kyrrð og mýkt, þar hvíli ég í fullkomnu öryggi og finn að ég er elskuð alveg eins og ég er. Einfaldleikinn í sambandi mínu við kærastann minn skapar þann tæra grunn sem lagið byggist á. Það að hjörtu okkar sofi hlið við hlið býr til það örugga, ævintýralega og á sömu stundu yfirvegaða ferðalag sem ástin hefur leitt okkur í. Það er sú tilfinning sem að ég tjái í laginu Easy,” segir Fanney.

Kjartan Kjartansson er hljóðhönnuður lagsins og þau Anna Gréta og Mikael Máni gefa laginu enn meiri dýpt með sínu einstaka samspili og hljóðfæraleik. Dúnmjúkur sellóleikur Ásdísar Arnardóttur og bjartur bakraddasöngur vinkvenna Fanneyjar lyftir laginu upp.

Fanney er hluti hóps listamanna sem hefur vinnuaðstöðu í Sigurhæðum, húsi séra Matthíasar Jochumssonar og Guðrúnar Runólfsdóttur. Formlegri opnun hússins var fagnað 6. júní og þar söng Fanney fyrir gesti.

Fanney vinnur nú að plötunni sinni Bleed’n blend sem er væntanleg í ágúst.

Hér er lagið Easy á Spotify

Hér er hægt að horfa á upptjöku af Fanney flytja Easy

Facebook síðan Kjass

Fanney á Instagram