Fara í efni
Menning

Grasrótarhljómsveitir á hátíð í Litla-Garði

Hljómsveitin Poets, Bullets, Society er ein þeirra sem kemur fram á Grasrótinni 2024.
Tónlistarhátíðin Grasrót verður haldin í Hlöðunni í Litla-Garði á Akureyri laugardaginn 2. mars og hefst kl. 20. Boðið verður upp á fjögurra klukkustunda prógramm. Að viðburðinum standa Ari Orrason, Davíð Máni Jóhannesson (gítar, söngur í Miomantis) og Daniel Alpi (söngur og gítar í Dream The Name), en þá hefur að sögn alltaf langað til að setja saman viðburð til að koma grasrótarhljómsveitum bæjarins á framfæri. 
 
Fimm hljómsveitir koma fram á hátíðinni
  • Miomantis
  • Ari Orrason
  • Dream The Name
  • Poets, Bullets, Society
  • Sót


Poets, Bullets, Society


Dream The Name.


Miomantis.