Fara í efni
Menning

Góður árangur STEPS á Dance World Cup

Keppnishópur Dansskólans STEPS á Akureyri er kominn heim eftir þátttöku á Dance World Cup 2026 í Dublin á Írlandi. Alls tóku 23 nemendur þátt í keppninni og sýndu alls 18 atriði í mörgum flokkum og greinum.

Á Facebook-síðu skólans kemur fram að þetta hafi verið fjölbreyttasti hópur sem STEPS hefur sent á Dance World Cup. Flest atriðanna kepptu í fjölmennustu keppnisflokkunum þar sem 30 til 45 atriði börðust um verðlaunasætin og í slíkri samkeppni gefi lokasætið ekki alltaf rétta mynd af frammistöðu þátttakenda. Langflest atriði Team STEPS hafi hlotið yfir 80 stig og mörg þeirra bættu árangur sinn frá undankeppninni. 

„Það endurspeglar þann metnað, aga og miklu vinnu sem dansararnir lögðu í undirbúninginn og þær framfarir sem náðust á leiðinni til Dublin,“ segir á Facebook-síðu skólans.

Þrátt fyrir að keppnin hafi verið stór hluti af ferðinni kemur fram á síðunni að mestu máli skipti sú reynsla sem þátttakendur öðluðust. Það hafi skilað bæði faglegum framförum og dýrmætri reynslu fyrir unga dansara skólans. Dansararnir hafi sýnt hugrekki, samheldni og fagmennsku, bæði á sviði og utan þess, og að vináttan og lærdómurinn sem skapaðist á mótinu muni fylgja þeim áfram.