Gjörningar, frumsýningar og fjölbreytt tónlist
Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Í þessari viku kennir ýmissa grasa, t.d. frumsýna bæði Leikfélag Akureyrar og Freyvangsleikhúsið fyrstu verk leikársins á föstudagskvöld. A! Gjörningahátíðin verður haldin í tólfta sinn og hinir árlegu Dekurdagar verða á sama tíma. Þá verður hægt að sækja tónleika af fjölbreyttu tagi frá fimmtudegi til laugardags.
Tónleikar
- Íslenskar djassperlur – Menningarhúsinu Hofi, fimmtudag 8. október kl. 20. Lydía Rós og Risto Laur fylla Hamra af ljúfum tónum þar sem lög Jóns Múla Árnasonar og textar Jónasar Árnasonar skipa heiðursess.
- MaidenIced – Græna hattinum, föstudag 9. október kl. 21. Íslenska heiðurssveitin MaidenIced flytur plötu Iron Maiden Somewhere in Time í heild sinni, í tilefni af 40 ára útgáfuafmæli plötunnar, í bland við vel valin lög af ferli Iron Maiden.
- Helgi Björns & Reiðmenn vindanna – Menningarhúsinu Hofi, laugardagskvöld 10. október kl. 20. „Að hætti Reiðmanna, sem er hljómsveit í toppformi, verður stemningin lifandi, einlæg og full af orku - þar sem salurinn syngur með. Þetta verða meira en bara tónleikar. Þetta verður kvöld þar sem minningar lifna við og nýjar verða til,“ segir í kynningu.
- Hr. Eydís og Erna Hrönn – Græna hattinum, laugardag 10. október kl. 21. „Bestu bíómyndalög níunda áratugarins - tónleikapartý þar sem stærstu kvikmyndasmellir '80s fá að njóta sín,“ segir í kynningu.

Það verður kvikmyndatónlistar-80's partí á Græna hattinum á laugardagskvöldið.
Viðburðir
- A! Gjörningahátíð – Ýmsar staðsetningar, fimmtudag 8., föstudag 9. og laugardag 10. október. Fjölbreytt dagskrá þar sem innlendir sem og erlendir listamenn leiða saman gjörningalist, dans, myndlist, tónlist og leikhús. Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar.
- Fasteignamartröðin – Frumsýning Leikfélags Akureyrar í Samkomuhúsinu föstudag 9. október kl. 20. Önnur sýning sunnudag 11. október kl. 20 þar sem höfundur leikritsins verður viðstaddur og segir frá verkinu.
- Útsynningur – Frumsýning Freyvangsleikhússins föstudag 9. október kl. 20. Önnur sýning laugardag 10. október kl. 20.
- Dekurdagar – Akureyri, 8.-11. október. Líf og fjör með viðburðum um allan bæ, bleikar slaufur hengdar upp og peningum safnað fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis.

A! Gjörningahátíðin verður haldin í tólfta sinn með viðburðum á fimmtudag, föstudag og laugardag.
Listsýningar
- Frjó og flæði – Aðalheiður S. Eysteinsdóttir. Sýningaropnun á Leyni, fimmtudag 8. október kl. 18 og gjörningur kl. 18:30.
- Öðruvísí orð – Rakel Hinriksdóttir. Bókasafn Háskólans á Akureyri. Sýningin stendur til 2. nóvember og er opin á afgreiðslutíma safnsins.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 31. desember 2026.
- Svartur blettur – Logi Bjarnason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 10. janúar 2027.
- Í skugga átaka – Samsýning. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 10. janúar 2027.
- 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar – Berglind Jóna Hlynsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 10. janúar 2027.
- Hughrif - Litir - Form II – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Í snertingu – Samsýning þriggja listamanna. Listasafnið á Akureyri og Lystigarðurinn á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Bergmál umbreytingar: Út í garð – Charlotte Søeborg Ohlsen. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Hversdagsland – Baldvin Ringsted. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Opnun ársins – Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar myndlistarsýningu á Leyni á fimmtudagskvöld og verður með gjörning í leiðinni.
Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.