Fara í efni
Menning

Gellurnar sýna á bókasafni Háskólans

Myndin er aðsend.

Myndlistarhópurinn Gellur sem mála í bílskúr opnaði sýningu á bókasafni Háskólans á Akureyri fimmtudaginn 7. mars. Sýningin ber heitið „Allskonar“. 

Samkvæmt fréttatilkynningu frá gellunum verður opið eitthvað fram á vorið, sem er skemmtilega loðið. Hægt er að skoða sýninguna á opnunartíma Bókasafns Háskólans kl. 8-16 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Á þriðjudögum og fimmtudögum er opið frá kl. 8-18.

Í hópnum eru átta listamenn sem hittast reglulega og mála saman í bílskúr. Hópurinn kynntist í Listfræðslunni á Akureyri og stofnuðu klúbbinn Gellur sem mála í bílskúr í janúar 2016. Markmið hópsins er einfaldlega að hittast, styðja hvert annað í listsköpuninni og hafa gaman. Hópurinn hefur haldið fjölmargar sýningar, tekið þátt í samsýningum og einnig hafa sumir verið með einkasýningar.