Fara í efni
Menning

Gefa skólum myndverk í minningu Arnar Inga

Listasmiðja Arnar Inga í ónefndum skóla. Mynd af Facebook síðunni Örn Ingi – Arnarauga

Örn Ingi Gíslason fjöllistamaður hefði orðið áttræður í dag. Meðal fjölmargra ólíkra verkefna sem Örn Ingi tók að sér voru listasmiðjur í grunnskólum víða um land og fjölskylda hans hefur nú ákveðið að gefa hverjum og einum þeirra skóla „myndverk úr arfleið hans til varðveislu í minningu um Örn Inga og list hans og Dýrleifu Bjarnadóttur (1943) píanókennara, eftirlifandi eiginkonu hans,“ eins og segir í nýlegu gjafabréfi.

„Fjölskyldan hefur haldið list og minningu listamannsins á lofti frá því hann féll frá í september árið 2017 og það er einlæg ósk hennar að myndverkið verði nemendum og kennurunum innblástur og til augnayndis,“ segir í bréfinu.

Vilja vekja upp minningar

„Ástæðan fyrir þessu gjafabréfi er vilji fjölskyldu Arnar Inga listamanns að vekja upp minninguna um heimsókn hans í skólann ykkar á sínum tíma og göfugt starf með nemendum sem nú er orðið fullorðið fólk. Það var mjög gaman þegar þeir gáfu sig á tal við sýningarstjórann við komuna á yfirlitssýninguna Örn Ingi Gíslason. Lífið er LEIK-fimi í Listasafninu á Akureyri (3. nóvember 2018 til 27. janúar 2019). Mörg þeirra sögðu að Örn Ingi hefði breytt lífi þeirra með þátttöku í listasmiðjunni/listavikunni. Það er ljóst að þúsundir barna höfðu tekið þátt í listmenntun hans allt frá 1983 þegar hann hóf kennslu á þessu sviði í grunnskólanum á Kópaskeri undir stjórn Péturs Þorsteinssonar.“

Frá yfirlitssýningunni Lífið er LEIK-fimi í Listasafninu á Akureyri. Mynd af Facebook síðunni Örn Ingi – Arnarauga.

Listasöfn varðveita helstu verkin

Í bréfinu segir að allt frá lokum yfirlitssýningarinnar í Listasafninu á Akureyri í janúarmánuði 2019 hafi fjölskylda Arnar Inga gert list hans sýnilegri landsmönnum og skuldbundið sig til að finna listasöfn sem treysta sér til að varðveita helstu verk hans og gera þeim góð skil til almennings. „Eftirfarandi listasöfn þágu fjölda verka og sameinuðu safneign sinni. Þau eru: Listasafnið á Akureyri, Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Hafnarborg í Hafnarfirði, Listasafn ASÍ, Listasafn Háskóla Íslands, Nýlistarsafnið og Safnasafnið á Svalbarðsströnd. Örn Ingi bar sterkar taugar til þessarra safna og safnstjóra, og sýndi hann í mörgum þeirra.“

Í bréfinu segir ennfremur:

„Skólastofnunum á landinu er boðin listverk að gjöf, þeir skólar sem Örn Ingi var fenginn til að „hrista upp í skólastarfinu“ og vinna með nemendum til að örva sköpunarkraftinn. Þar á meðal eru: Grunnskólinn Kópaskeri (1983, 1988), Laugalandsskóli (1985), grunnskólinn á Hvammstanga (1988), grunnskólinn á Húnavöllum (1988), Grenivík (1988), Þórshöfn (1988), Svalbarðsskóli í Þistilfirði (1988/90), grunnskólinn á Raufarhöfn (1989, 1995), Dalvíkurskóli (1994), Fellaskóli á Egilsstöðum (1996), grunnskólinn á Höfn í Hornafirði (1992, 1997), Öldutúnsskóli (1999), Álftanesskóli (2000), Árbæjarskóli (2000), grunnskólinn í Djúpavogi (2005), grunnskólinn á Grundarfirði (2006) og grunnskólinn á Vopnafirði (2013), en líka grunnskólinn í Vestmannaeyjum vegna tengingu leikstjórn hans á Kardimommubænum með Leikfélagi Vestmannaeyja (1993), auk grunnskólanna á Akureyri. Einnig er Menntaskólanum á Akureyri og Menntaskólanum við Sund í Reykjavík gefin verk til minningar um gjörninginn Jarðarför verðbólgunnar sem þar var fluttur í lok nóvember 1979, og Háskólanum á Akureyri í þágu menntavísinda og kennaranáms í myndmennt.“