Gamansögur og Lóuljóð – Botnleðja og ABBA
Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Nefna má að í þessari viku lýkur nokkrum sýningum í Listasafninu á Akureyri og því síðustu forvöð að upplifa þær. Á tónlistarsviðinu er m.a. hægt að njóta tónlistar ABBA og Botnleðju (þó ekki saman) og Rögnvaldur gáfaði segir gamansögur á Græna hattinum í kvöld. Röggi er endalaus uppspretta gamanmála og kímni, enda nýorðinn 61 árs og hefur upplifað ýmislegt spaugilegt um dagana.
Tónleikar
- Mania: The ABBA Tribute – Menningarhúsinu Hofi, laugardag 5. september kl. 20. „Mania: The ABBA Tribute er vinsælasta ABBA sýning í heimi og hefur verið sýnd í yfir 35 löndum síðustu tvo áratugi. Milljónir gesta hafa skemmt sér konunglega á Mania: The ABBA Tribute,“ segir í kynningu.
- Botnleðja – Græna hattinum, laugardag 5. september kl. 21. Tónleikarnir eru hluti af endurkomu sveitarinnar, sem kom aftur saman á þessu ári eftir nokkurra ára hlé frá tónleikahaldi. Á tónleikunum mun Botnleðja flytja öll sín þekktustu lög og fara yfir ferilinn í heild sinni.

Botnleðja mun flytja öll sín þekktustu lög á Græna hattinum á laugardagskvöldið.
Viðburðir
- Bókarkynning - Lóuljóð – Amtsbókasafninu á Akureyri, föstudaginn 4. september kl. 17. Lovísa María Sigurgeirsdóttir (Lóa Maja) er Hríseyingur að uppruna en flutti til Dalvíkur 14 ára gömul og býr þar ásamt fjölskyldu sinni. „Hún sækir yrkisefni sín í samfélög æskustöðvanna í Hrísey og heimkynnanna á Dalvík og svo auðvitað líka í eigin hugarheim,“ segir í kynningu. Auk ljóðanna prýða bókina fuglamyndir Heimis Sigurgeirssonar, bróður Lóu Maju.
- Rögnvaldur gáfaði - Stutt í brosið – Græna hattinum, föstudag 4. september kl. 21. Í tilefni sextugsafmælis síns í fyrra var Röggi með nokkur skemmtikvöld sem gengu vel. Líkt og í fyrra ætlar hann núna að að segja gamansögur og að þessu sinni sögur sem hann hefur sankað að sér síðastliðið ár. „Sögurnar eru bæði sannar og lognar, aðallega lognar,“ segir í kynningu.
- Heilagur fugl – um geirfuglinn, manninn og náttúruna – Málþing í Listasafninu á Akureyri, laugardaginn 5. september kl. 14-16. „Þrír ólíkir sjónarhólar – myndlist, fuglafræði og mannfræði – mætast þegar Örlygur Kristfinnsson, Tim Birkhead og Gísli Pálsson ræða sögu geirfuglsins og þær spurningar sem hún vekur um ábyrgð mannsins, nýtingu náttúrunnar og útrýmingu tegunda,“ segir í kynningu.

Rögnvaldur gáfaði er endalaus uppspretta gamansagna. Nýjar lygasögur verða sagðar á Græna hattinum í kvöld og kannski einhverjar sannar inn á milli.
Listsýningar
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Zimoun – Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Sýning um heilagan fugl – Örlygur Kristfinnsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Andlegar verðmætavindur Magnúsar – Magnús Helgason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- S-I-L-I-C-A-0-3 – Hulda Rós Guðnadóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Hughrif - Litir - Form I – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Í snertingu - Samsýning þriggja listamanna. Listasafnið á Akureyri og Lystigarðurinn á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Bergmál umbreytingar: Út í garð – Charlotte Søeborg Ohlsen. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Hversdagsland – Baldvin Ringsted. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Opnun ársins – Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.

Eitt verka Baldvins Ringsted á sýningunni Hversdagsland í Listasafninu á Akureyri.
Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.