Fara í efni
Menning

Gamanverkið Fullorðin frumsýnt í kvöld

Gamanleikurinn Fullorðin verður frumsýndur í Samkomuhúsinu í kvöld. „Fullorðin er sprenghlægileg sýning um það skelfilega hlutskipti okkar allra að verða fullorðin og misheppnaðar tilraunir okkar til að sannfæra aðra um að við séum það,“ segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.

Leikarar eru Árni Beinteinn Árnason, Birna Pétursdóttir og Vilhjálmur Bergmann Bragason en þau eru einnig höfundar verksins. Leikstjórar eru Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir og Marta Nordal. „Fullorðið fólk á að vita hvað það er að gera! Staðreyndin er hinsvegar að enginn veit hvað hann er að gera og allir eru að þykjast. Það vekur upp stórar spurningar um það hvenær og hvort maður verði nokkurn tímann fullorðinn? Við leggjum upp í ferðalag um fullorðinsárin og restina af þessari afplánun sem flestir kalla mannsævi!" segir í tilkynningunni.

Birna Pétursdóttir sagði í haust, þegar til stóð að frumsýna Fullorðin að ef einhver sýning ætti erindi, væri það þessi; „sýning sem fær fólk til að hlæja, sem er einmitt það sem við þurfum öll mest á að halda nú um stundir. Að því leyti til er þetta svona samfélagsverkefni af okkar hálfu, ekki samfélagsþjónusta, mjög mikilvægt að gera greinarmun á því. Við höfum ekki verið dæmd fyrir neitt – ennþá.“

Birna er án efa enn á þessari skoðun. Og um það, hvernig það lýsi sér að fullorðin, sagði Birna: „Þetta snýst aðallega um að ákveða hvað á að vera í kvöldmat og svo er þetta bara niðurtalning í yfirvofandi dauða minn!“