Menning
Fyrsta lag Drykkja innbyrðis í 40 ár
24.04.2026 kl. 20:00
Hljómsveitin Drykkir innbyrðis sem sendi frá lag í dag, það fyrsta í 40 ár! Frá vinstri: Eiríkur S. Jóhannsson, Viðar Garðarsson, Ingi Rafn Ingvason, Rúnar Örn Friðriksson og Haukur Eiríksson.
Það er án efa daglegt brauð að nýtt lag birtist á tónlistarveitunni Spotify, og hversdagslegur viðburður að því leyti, en lag akureyrsku hljómsveitarinnar Drykkja innbyrðis sem kom út í dag er sannarlega sögulegt. Lagið, Á vit feðranna, er nefnilega það fyrsta sem sveitin sendir frá sér í 40 ár!
Drykkir innbyrðis var stofnuð í ársbyrjun 1986, tók þátt í Músíktilraunum í apríl það ár og hafnaði í öðru sæti. Hljómsveitin starfaði til 1990, var áberandi þann tíma en lagðist í dvala þar til að sú hugmynd kviknaði á síðasta ári að taka upp þráðinn og það hefur heldur betur borið ávöxt því í haust kemur út 11 laga plata. Lagið Á vit feðranna er það fyrsta af henni sem gert er opinbert.

Drykkir innbyrðis á sviði á Músíktilraunum árið 1986 þar sem hljómveitin lenti í öðru sæti.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru Rúnar Örn Friðriksson, söngvari, Viðar Garðarsson sem leikur á bassa, Haukur Eiríksson hljómborðsleikari, gítarleikarinn Eiríkur S. Jóhannsson og Ingvi Rafn Ingvason trommari. Aðrir sem hafa spilað með hljómsveitinni eru Gísli Aðalsteinsson, Geir Rafnsson og Ólöf Sigríður Valsdóttir.
Hljómsveitin semur lagið Á vit feðranna í sameiningu en söngvarinn, Rúnar Örn Friðriksson, samdi textann.
Platan er tekin upp í Hofi á Akureyri. Haukur Pálmason er upptökumaður, mixar og hljómblandar. Pétur Hallgrímsson, gítarleikari og myndlistarmaður – einn Hvanndalsbræðra – teiknaði umslag plötunnar og Karl Örvarsson sá um grafík og letur, þannig að afurðin er eins akureyrsk og hugsast getur!
Vert er að geta þess að útgáfutónleikar hafa þegar verið ákveðnir, þeir verða á Græna hattinum 31. október.
SMELLIÐ Á MYNDINA TIL AÐ HLUSTA Á LAGIÐ Á SPOTIFY
