Fara í efni
Menning

Frumraun Óperunnar verður í dag í Hofi

Söguleg stund rennur upp í Menningarhúsinu Hofi síðdegis í dag, sunnudaginn 18. október, þegar hin nýstofnaða Ópera hefur starfsemi með glæsilegum opnunarviðburði undir yfirskriftinni Undir sömu stjörnu. Einvalalið söngvara, leikara og tónlistarfólks stígur á svið ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og tveimur norðlenskum kórum. Viðburðurinn markar upphaf nýs kafla í íslensku óperulífi og er það sérstakt fagnaðarefni að þessi tímamót skuli eiga sér stað á Akureyri, segir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar.

Óperan – stundum kölluð þjóðarópera – var stofnuð á síðasta ári. Hún er rekin sem hluti af Þjóðleikhúsinu og hefur aðalaðsetur í Hörpu en hefur sett sér það markmið að færa óperulistina nær landsmönnum öllum og hefur starfsemina utan höfuðborgarsvæðisins. Opnunarviðburðurinn í Hofi er sá fyrsti af fimm sem haldnir verða víðs vegar um landið á næstu vikum, en að Akureyri lokinni liggur leiðin meðal annars til Eskifjarðar, Skálholts og Reykjanesbæjar og loks í Þjóðleikhúsið.

Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar.

„Það er okkur hjá Menningarfélagi Akureyrar mikið gleðiefni og jafnframt mikill heiður að hin nýstofnaða Ópera skuli velja Hof til að hefja starfsemi sína. Þetta eru mikilvæg skilaboð um að stórir menningarviðburðir eigi ekki eingöngu heima á höfuðborgarsvæðinu heldur sé öflugt listalíf um allt land,“ segir Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins. Hún segir félagið, MAk, hafa boðið Óperunni að halda opnunarviðburðinn í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands „og erum stolt af því að norðlenskt tónlistarfólk fái að taka þátt í þessum sögulegu tímamótum.“

Rekja sögu óperunnar

Í dagskránni Undir sömu stjörnu er saga óperunnar rakin frá endurreisnartímanum til okkar daga með blöndu af tónlist, fróðleik og leiklist. Innblásturinn er meðal annars sóttur í merkilega samleið skáldskapar Jónasar Hallgrímssonar og tónlistar Richards Wagners, sem á sama tíma sóttu innblástur frá sömu björtu stjörnu sem lýsti upp næturhimininn.

  • Það eru söngvararnir Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Hildigunnur Einarsdóttir, Gunnar Björn Jónsson, Kristján Ingi Jóhannesson og Jónína Björt Gunnarsdóttir sem stíga fyrst á svið í nafni Óperunnar. Með þeim leika og syngja Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju og Kammerkór Norðurlands. Leikararnir Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir leiða áhorfendur í gegnum óperusöguna, en handrit og leikstjórn eru í höndum Ólafs Egils Egilssonar. Richard Schwennicke, tónlistarstjóri Óperunnar, stjórnar hljómsveitinni.

„Umfangsmikil undirbúnings- og samstarfsvinna liggur að baki slíkum viðburði og hefur Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar, gegnt mikilvægu hlutverki við að greiða götu verkefnisins og stuðla að því að opnunarviðburðurinn yrði að veruleika í Hofi. Með frábæru samstarfi Óperunnar, Þjóðleikhússins, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og tveggja norðlenskra kóra verður til einstakur vettvangur fyrir þessi tímamót í íslensku tónlistarlífi,“ segir Eva Hrund.

„Með því að hefja starfsemi Óperunnar á fjórum stöðum á landsbyggðinni áður en hún fer til höfuðborgarinnar sýnir Óperan sannarlega í verki að hún ætlar að sinna öllu landinu, sem er í senn metnaðarfullt og til fyrirmyndar. Ég vil óska Íslendingum öllum og Óperunni til hamingju með tímamótin og hlakka til frekara samstarfs á sviði listarinnar,“ segir Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar.

UNDIR SÖMU STJÖRNU - HOF Í DAG KLUKKAN 16:00