Fara í efni
Menning

Frumflytja verk eftir sex akureyrsk tónskáld

Sumarlistamaður Akureyrarbæjar, Mahaut Ingríður Matharel, stendur fyrir tónleikum í Akureyrarkirkju í dag, laugardaginn 22. ágúst kl. 18. Með henni á tónleikunum leikur hópur níu hljóðfæraleikara, að mestu skipaður nemendum Tónlistarskólans á Akureyri. Þau frumflytja ný tónverk fyrir ýmsar hljóðfærasamsetningar eftir sex akureyrsk tónskáld á ýmsum aldri, þar á meðal Mahaut sjálfa. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öll velkomin, að því er fram kemur í tilkynningu.

Tónleikana kallar Mahaut Ingríður Snert hörpu mína, enda leikur hún á hörpu, en er einnig tónskáld eins og sjá má að framan. Einning verða frumflutt verk eftir Þorvald Örn Davíðsson, Michael Jón Clarke, Jóhann Val Björnsson, Guðjón Elí Ingvarsson og Ísólf Raymond Matharel. „Tónleikarnir eru hugsaðir til þess að efla þekkingu á hljóðfærinu og hjálpa tónskáldum að koma verkum á framfæri og prófa að semja fyrir nýtt hljóðfæri eða æfa sig á því. Tónleikarnir eru verkefni mitt sem Sumarlistamaður Akureyrarbæjar og eru styrktir af Akureyrarbæ,“ skrifar Mahaut Ingríður á Facebook.