Fara í efni
Menning

Franskt bíó, fortíðin, Kuldaboli og vatnslitir

Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.

Viðburðir

  • Franska kvikmyndahátíðin 2026
    • L'Inconnu de la Grande Arche – Boginn mikli. Sambíóin kl. 17.00. Franskt tal og íslenskur texti. Miðvikud. 11. feb.
    • La Haine – Hatrið. Sambíóin kl. 17.00. Franskt tal og enskur texti. Fimmtud. 12. feb.
    • Maya, donne-moi un titre – Maya, gefðu mér titil. Amtsbókasafnið á Akureyri kl. 13.00. Fransk tal og íslenskur texti. Laugard. 14.feb.
    • L’Histoire de Souleymane – Saga Souleymane. Listasafnið á Akureyri kl. 17.00. Franskt tal og enskur texti. Sunnud. 15. feb.
  • Fortíðin í nýju ljósi: Akureyrarveikin og MS sjúkdómurinn. Fyrirlestur Óskars Þórs Halldórssonar og Friðbjarnar Sigurðssonar á Minjasafninu. Hluti af fyrirlestraröð safnsins. Fimmtudaginn 12. feb kl. 17-18.
  • Opið hús hjá FFA - Náttúruperlur Albaníu. Brynhildur Bjarnadóttir segir frá. Miðvikudagskvöldið 11. feb kl. 20.00. 
  • Skiptibókamarkaður með erlendar bækur á Amtsbókasafninu allan mánuðinn, en bókasafnið heldur upp á 'Mánuð móðurmáls'. 
  • Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
  • Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 10. febrúar er næsti hittingur.
  • Danskvöld og ókeypis prufutími í salsa - Salsa north á Vamos. Fimmtudagskvöldið 12.feb kl. 20.
  • Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
  • Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.

Tónleikar

Ný hljómsveit hefur verið stofnuð í Eyjafjarðarsveit, er heitir Kuldaboli. Hana skipa Helgi og Bergsteinn Þórssynir, Hafþór og Agnar. Þeir hafa gefið út sitt fyrsta lag, sem er framboðslag og heitir 'Fjandinn er í framboði'. Generalprufa verður haldin í Kaktus um helgina.

Listasýningar


Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.