Fara í efni
Menning

Franskar stuttmyndir sýndar í Listasafninu

Alice Guy, sem er talin vera fyrsti kvenleikstjóri leikinnar kvikmyndar.

Á morgun, sunnudaginn 14. mars, verður bíósýning í Listasafninu á Akureyri, sal 10, en þar verða sýndar 13 sérvaldar stuttmyndir eftir frönsku kvikmyndagerðakonuna Alice Guy.

Alice Guy er talin vera fyrsti kvenleikstjóri leikinnar kvikmyndar. Hún hlaut mikla viðurkenningu í sínu fagi sem taldist óvenjulegt í bransa sem áður hafði eingöngu verið opinn körlum. Fram til 1907 var Guy afar áhrifamikil hjá Gaumont framleiðslufyrirtækinu sem leikstjóri, listrænn stjórnandi, handritahöfundur og tæknimanneskja, að því er segir í tilkynningu frá Listasafninu.

Sýningin hefst klukkan 17.00 og er 50 mínútur að lengd. Enginn aðgangseyrir.