Fara í efni
Menning

FramtÝð Íslands – grín á Múlabergi í kvöld

Jóel Sæmundsson mun skemmta Akureyringum með grínsýningunni FramtÝð Íslands á Múlabergi í kvöld kl. 20.

FramtÝð Íslands er að sögn ný og öðruvísi grínsýning sem hefur notið gríðarlegra vinsælda um land allt og er nú á leið til Akureyrar. Sýningin byggist á grínfyrirlestrum Jóels sem ku hafa farið sigurför um fyrirtæki landsins að því er fram kemur í tilkynningu um viðburðinn. 

„Sjáðu hvernig framtíðin lítur út, hvaðan komum við og hvert erum við að fara. (Og hver tók skóna hjá barnabarni Ingu Sæland?). Fyrirlesarinn Jóel gerir sitt allra besta til að skýra hlutina,“ segir meðal annars um sýninguna. 
 
Miðasala á viðburðinn fer fram á vefsíðu Jóels - sjá hér.