Fara í efni
Menning

Framtíð Drykkja innbyrðis á Spotify

Mynd: Þorgeir Baldursson

Hljómsveitin Drykkir innbyrðis hefur sent frá sér nýtt, Framtíðin, sem er aðgengilegt á Spotify. 

Drykkir innbyrðis var stofnuð á Akureyri í ársbyrjun 1986, tók þátt í Músíktilraunum í apríl það ár og hafnaði í öðru sæti, eins og akureyri.net rifjaði upp á dögunum. Hljómsveitin starfaði til ársins 1990, var áberandi þessum tíma en lagðist þá í dvala allt þar til að sú hugmynd kviknaði á seinasta ári að taka aftur upp þráðinn!

Hljómsveitin hefur að undanförnu unnið að upptökum á plötu sem gefin verður út í haust, fyrsta lagið – Á vit feðranna – kom út í apríl og formlegir útgáfutónleikar verða á Græna hattinum 31. október í haust.

Meðlimir hljómsveitarinnar eru Rúnar Örn Friðriksson, söngvari, Viðar Garðarsson sem leikur á bassa, Haukur Eiríksson hljómborðsleikari, gítarleikarinn Eiríkur S. Jóhannsson og Ingvi Rafn Ingvason trommari.

  • Smellið á myndina hér að neðan til að hlýða á nýja lagið.