Fara í efni
Menning

Flytja einn fallegasta fiðlukonsertinn í Hofi

Helga Diljá Jörundsdóttir, sem flytur fiðlukonsert í E moll eftir Mendelssohn á laugardaginn, og Michael Jón Clarke, stjórnandi Hljómsveitar Akureyrar.

Hljómsveit Akureyrar færir okkur úrval tónlistar Mendelssohns á laugardaginn kemur, en slegið verður til tónleika í Hamraborg í Hofi kl. 20.00. Það er Michael Jón Clarke sem stjórnar hljómsveitinni sem telur 40 hljóðfæraleikara að þessu sinni. Einleikari verður hin unga og efnilega Helga Diljá Jörundsdóttir sem flytur fiðlukonsert í E moll. Michael var á leiðinni suður til Reykjavíkur til æfinga þegar blaðamaður Akureyri.net náði tali af honum.

Eitt vinsælasta og mest spilaða lag heims

„Mendelssohn var undrabarn í tónlist,“ segir Michael. „Hann dó aðeins 38 ára gamall en manni líður eins og hann hafi lifað svo lengi miðað við það sem hann skildi eftir sig. Eitt af verkunum sem við flytjum samdi hann bara 17 ára, en það er kannski eitt vinsælasta lag í heimi. Það er nefnilega spilað við nánast hvert einasta brúðkaup. Brúðkaupsmarsinn hans Mendelssohn er lagið sem er spilað þegar gengið er fram kirkjugólfið í lok athafnarinnar. Svo er það Brúðarmarsinn eftir Wagner sem er gjarnan spilaður þegar brúðurin gengur inn kirkjugólfið.“

Þessi skemmtilega tenging við brúðkaup er tekin skrefinu lengra hjá Michael og Hljómsveit Akureyrar, en öllum þeim sem gengu í það heilaga á árinu hingað til, er boðið að fá frímiða á tónleikana í brúðakaupsgjöf, eins og Akureyri.net sagði frá í gær:

  • HA býður nýgiftum til Mendelssohn veislu

Helga Diljá Jörundsdóttir, einleikari á fiðlu á tónleikunum í Hofi. Til hægri, auglýsingin fyrir tónleikana.

Efnilegur einleikari á fiðlu

„Við ætlum að spila þekkt verk eftir Mendelssohn, meðal annars einn fallegasta fiðlukonsert í heimi, að mörgum finnst,“ segir Michael. Hljómsveit Akureyrar hefur verið þekkt fyrir að veita ungum einleikurum tækifæri til þess að spreyta sig, og nú er engin undantekning á því. Ungur fiðluleikari, Helga Diljá Jörundsdóttir, spilar þennan konsert á laugardaginn. Helga var meðal sigurvegara Ungra einleikara 2024 og Nótunnar 2023, og hún hefur einnig komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

„Helga er í tónlistarnámi erlendis en hún kemur sérstaklega hingað til þess að spila þessa tónleika með okkur,“ segir Michael. „Hún hefur tengingu hingað norður og til mín með því að hún var suzuki nemandi hjá einum af mínum fyrstu nemendum, Helgu Torfa.“

„Ég er með þetta á mínum herðum sem endranær. Allt frá því að kaupa samlokur og upp í að stjórna hljómsveitinni. Það er í mörg horn að líta en þetta er gaman. Þetta er alltaf gaman,“ segir Michael að lokum.

Hér er hægt að nálgast miða á tónleikana.

Michael Clarke stjórnar Hljómsveit Akureyrar  á tónleikunum „Klassískt nýárskonfekt“ í Glerárkirkju í janúar. Mynd: Þorgeir Baldursson