Flammeus gefur út plötuna Pain <3
Akureyrski tónlistarmaðurinn Flammeus sendir frá sér breiðskífuna Pain <3 þann 12. nóvember næstkomandi. Þar kveðst hann flétta saman „melódískar lagasmíðar, djassaða fágun og spiritúalíska sjálfsskoðun í úrvali lifandi hljóðversupptaka“. Þetta er þriðja breiðskífa listamannsins.
Platan sækir innblástur í hrátt og mannlegt andrúmsloft fyrstu Bítlaupptakanna, segir Flammeus. Hún fangi spennuna, ófullkomleikann og þá tónlistarlegu einingu sem skapast við lifandi flutning – eiginleika sem geti glatast þegar upptökur eru slípaðar til og dauðhreinsaðar. „Verkin sameina aðgengilegar melódíur, djarfar hljómsetningar og tilraunir með takt, en fjalla jafnframt um ólíkar hliðar ástar, missis og persónuþroska.“
Listrænt hliðarsjálf Tuma
Flammeus er listrænt hliðarsjálf akureyrska tónlistarmannsins Tuma Hrannar Pálmasonar. Tumi er söngvari og tónsmiður og leikur á ýmis hljóðfæri. Hann býr í Þýskalandi um þessar mundir og stundar meistaranám í djassbassaleik. Í verkum sínum segist hann sameina frjálsræði sjálfstætt starfandi tónlistarmanns og öguð vinnubrögð djassakademíunnar. Tónlist hans býður hlustendum að hægja á ferðinni, líta inn á við og jarðtengjast, segir listamaðurinn.

Titillagið um ást í fjörbrotum
Flammeus segir titilinn Pain <3 vísa til kjarnahugmyndar plötunnar; að sársauki sér ekki aðeins andstæða hamingju heldur órjúfanlegur hluti mannlegrar reynslu – og kannski tilfinning sem við getum lært að vera þakklát fyrir.
Hann segir titillagið Pain fjalla um samband í fjörbrotum og hvernig ástin getur orðið að botnlausum sársauka. „Lagið dvelur þó ekki við sjálfsvorkunn heldur kafar dýpra og leitar sátta við sársaukann. Textinn fjallar um hvernig væntingar geta flekkað ástina og hvernig gleði og þjáning eru óhjákvæmilegur hluti lífsins,“ segir Flammeus.
„Tónlistarlega sameinar Pain melódískan aðgengileika og djassskotna hljómfræðilega dýpt. Platan hefst á þéttu tríói með greinilegum Bítlaáhrifum, hljóðrituðu í einni töku við lifandi flutning. Lagið snýr svo aftur í lok plötunnar í tveimur stærri útgáfum sem sýna ólíkar hliðar þess – frá léttara poppi yfir í tilraunakenndari og frjálslegri djassópuss.“
Verðlaunaður bassaleikari
Með útgáfunni rætist langþráður draumur Flammeusar um að fanga orkuna og spennuna sem myndast þegar hljómsveitin spilar saman, án þess að fórna smáatriðunum sem gera hvern flutning einstakan, eins og hann orðar það. Platan sé unnin af þrautæfðri hljómsveit og endurspegli þróun Flammeusar bæði sem tónsmiðs og flytjanda. Þar mætist einlægni sjálfstæða lagahöfundarins og frjálsræði djassspunans.
Flammeus hefur áður gefið út plöturnar The Yellow árið 2019 og ASAP (As Sane As Possible) árið 2024. Hann hefur hlotið verðlaun sem bassaleikari og söngvari, og tók þátt í The Voice Iceland aðeins 18 ára gamall. Síðan hefur hann haldið áfram að hasla sér völl sem lagasmiður og tónlistarmaður.
Pain <3 kemur út á streymisveitum 12. nóvember sem fyrr segir. Útgefandi er Bulb Mind Records. Tumi Hrannar Pálmason sá um upptökustjórn, Helgi Freyr Tómasson um hljóðblöndun og Sigfús Jónsson um lokavinnslu í Hljómbræður Stúdíó. Hafsteinn Már Sigríðarson Khan sá um grafíska hönnun og Bernódus Óli Einarsson um ljósmyndun.
Hér er hægt að forvista plötuna og fá tilkynningu þegar hún kemur út: