Fara í efni
Menning

Flammeus aftur með ókeypis lagasmiðjur

Tumi Hrannar Pálmason - tónlistarmaðurinn Flammeus.

Tónlistarmaðurinn Flammeus – Tumi Hrannar Pálmason – býður á ný upp á ókeypis lagasmiðjur á Akureyri næsta miðvikudag, 19. ágúst. 

Margir sóttu í smiðju Tuma þegar hann bauð upp á samskonar smiðjur um síðustu páska, sömdu lag og hver um annan þveran lýsti yfir mikilli ánægju með daginn.

Lagasmiðjurnar standa frá kl. 10 til 16 í Hofi og eru ætlaðar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Fyrir smiðjurnar um páskana sagði Tumi að meginumfjöllunarefni námskeiðsins yrði uppbygging laga sem auðveld eru fyrir meðalmanninn að syngja með. „Það þarf ekki að hafa fyrri reynslu af lagasmíðum eða tónlistarnámi, heldur er áhersla lögð á að skapa aðgengilegt og uppbyggjandi umhverfi þar sem þátttakendur fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar og semja nýtt efni með faglegri leiðsögn,“ sagði hann þá og hið sama verður upp á teningnum á miðvikudaginn.

Strax um kvöldið verða haldnir tónleikar í Deiglunni, „þar sem lögin verða sungin með salnum,“ eins og Tumi orðar það. Miðaverð á tónleikana er 2.500 krónur en hver þátttakandi má bjóða einum fjölskyldumeðlim frítt.

Tumi Hrannar er 28 ára Akureyringur og MA stúdent sem lærði sem unglingur á rafbassa í Tónlistarskólanum á Akureyri en býr nú í Mannheim þar sem hann stundar mastersnám á rafbassa við Þýska ríkistónlistarháskólann.

Þátttaka í smiðjunum er ókeypis sem fyrr segir en nauðsynlegt er að skrá sig. Það er hægt hér: