Fara í efni
Menning

Fjölbreytt efnisskrá eftir 30 ára samstarf

Út er kominn geisladiskur þar sem Akureyringarnir Emil Friðfinnsson hornleikari og Þórarinn Stefánsson píanóleikari flytja fjölbreytta efnisskrá.

Útgáfan endurspeglar 30 ára samstarf þeirra Emils og Þórarins en þeir hófu samleik árið 1991 þegar þeir voru samtíða við nám og síðar störf í Þýskalandi. Emil var þá nýfluttur frá Essen, þar sem hann lærði við Folkwang háskólann, til Braunschweig þar sem hann hafði fengið stöðu við óperuhljómsveitina. Þórarinn bjó og starfaði í nágrannaborginni Hannover.

Áður höfðu þeir einnig verið samtíða við nám við Tónlistarskólann á Akureyri og síðar við Tónlistarskólann í Reykjavík.

Hljóðritanirnar sem hér má heyra eru af nokkrum þeirra verka sem þeir hafa haft á efnisskrám þeirra fjölmörgu tónleika sem þeir hafa blásið til á þess áratuga langa samstarfi. Sumt eru frumhljóðritanir á íslenskum verkum en önnur verk eru betur þekkt.

Emil Friðfinnsson er hornleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands og Þórarinn starfar nú fyrst og fremst sem kennari við Tónlistarskólann á Akureyri.

Gömlu myndirnar af þeim félögum voru teknar á sal Tónlistarskólans á Akureyri, líklega 1991, þegar skólinn var til húsa við Hafnarstræti.