Fara í efni
Menning

Fertugasta starfsári Sumartónleika að ljúka

Andrew J. Yang píanóleikari kemur fram á lokatónleikum 40 ára afmælishátíðar Sumartónleika í Akureyrarkirkju í dag kl. 17. Hann leikur úrval píanóverka og frumflytur að auki nýtt frumsamið verk.

Á tónleikunum, sem bera yfirskriftina Endurminning, leikur Andrew verk eftir Brahms, Chopin, Rachmaninoff og Ravel sem hverfast um endurminningar og nostalgíu. Einnig flytur hann eigin frumsamin píanóverk byggð á minningum frá Patreksfjarðarárum sínum og ferðalögum.

Á tónleikunum frumflytur Andrew einnig fjórða tónverkið sem pantað var í afmælisgjöf til Sumartónleika og tónleikagesta, en það er úr smiðju hans sjálfs. Þetta eru síðustu tónleikarnir á þessu 40. starfsári Sumartónleika í Akureyrarkirkju. Aðgangur er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum.