Fegurð, von og kærleikur
Elísabet verður með upplestur og spjall á Skáld hótelinu í Hafnarstræti kl. 15 á morgun, laugardag. Hún er eitt af þrettán heiðursskáldum hótelsins, en fræðast má um ljóðafjölskylduna á heimasíðu hótelsins. Þetta er ekki fyrsti viðburðurinn af þessum toga, því Þórarinn Eldjárn er annað heiðursskáld hótelsins og sóttu hátt í 300 manns ljóðalestur hans á hótelinu síðla septembermánaðar. En hvað hyggst Elísabet bera á borð fyrir gesti?
„Áður en ég segi þér það, þá var ég að klára fyrstu drög að handriti, sem nefnist Septemberbirtumyrkur, framhaldi af Aprílsólarkulda, sem var metsölubók og verðlaunabók. Mér fannst því gráupplagt að halda áfram með hana og er það verk ennþá í vinnslu. En svo fór ég að velta fyrir mér hvort ég skrifaði bara um geðveiki og innilokun, hvort ég ætti frekar að skrifa um fegurðina, vonina, kærleikann og dansinn – og sagði þetta á facebook. Ég bað lesendur að svara mér og segja hvað þeim fyndist. Þá kom Anton Helgi Jónsson inn á þráðinn og sagði: „Haltu þínu striki.“ Svo kom Didda með sína visku: „Þú ert alltaf að skrifa um fegurðina í geðveikinni, vonina í innilokuninni og kærleikann í sjálfsofbeldinu.“
– Það þarf ekki að vera niðurdrepandi að tala um erfiða hluti.
„Nei, alls ekki. Það er eitt af því sem við þurfum að gera og þegar frá líður þá sér maður líka húmorinn í því sem maður er búinn að vera að glíma við. En ég ætla sem sagt að lesa upp úr nýja handritinu og svo ætla ég að lesa upp úr Ufsakletti og Bænabókinni.“
– Þú ert eitt af heiðursskáldum Skáld hótels, en þetta er í fyrsta skipti sem þú sækir hótelið heim?
„Já, ég hlakka alveg rosalega til,“ svarar hún. „Og ég er svo mikill egóisti að ég er full auðmýktar og stolts, en svo finnst mér þetta líka mjög sjálfsagt og eðlilegt!“ Hún rekur upp hláturroku. „Nei, ég segi svona í djóki.“ Svo bætir hún við: „Þetta er rosalegur heiður, svo ég segi nú frá þessu í andakt.“
– Ætlarðu að gera eitthvað fleira fyrir norðan?
„Heyrðu, ég ætla að fara í göngutúr og hitta vinkonur mínar Jónu Lísu, Þóru og Margréti Jónsdóttur listakonu og áreiðanlega fleiri. Kannski ég fari í messu, Pétur Nói vinur minn er organisti í kirkjunni. Þá fæ ég að hlusta á hann spila á orgelið; hann er kornungur og nýútskrifaður organisti úr Listaháskóla Íslands.“
Eftir stutta umhugsun bætir Elísabet við:
„Lára [Ómarsdóttir] fór að skrifa mér meðan ég var að tala við þig. Það er verið að gera heimildarmynd um mig, var ég búin að segja þér það? Heiðrinum svoleiðis rignir yfir mig – ég veit ekki hvar þetta endar! Nú á að gera pítsaveislu fyrir allt niðjatalið, börnin og barnabörnin og tengdabörnin, það verður aðra helgi. En hvað á ég að segja fleira?“
Hún þagnar. En bara eitt augnablik.
„Já, ég ætla að lesa upp úr þessu nýja handriti og Ufsakletti, sem er líka verðlaunabók og segir frá skaðlegu sambandi, en með húmorísku ívafi. Það var verið að setja upp óperu úr verkinu, sem er ekki fyndið, en kómískur tónn skulum við segja. En Bænabókin, hún er þannig til komin að ég átti ekki fyrir mat. Þá hringdi ég í trúnaðarkonu mína, sagði farir mínar ekki sléttar. Hún sagði að ég yrði að biðja Guð, setja þetta í hendurnar á Guði, og ég sagði nú bara: „Er Guð kaupmaðurinn á horninu?“ Svo lauk samtalinu og ég fór að skrifa bænir. Tveim árum seinna gaf ég út Bænabókina: „Góður Guð, ég hugsa alltof mikið, geturðu hætt að láta mig hugsa svona?“ Þetta eru sætar örlitlar bænir, hver þeirra ein setning.“
– Og þér varð að bæn þinni – Bænabókin seldist upp aftur og aftur og þú áttir fyrir salti í grautinn?
„Já, þannig var ég bænheyrð.“
Hún hugsar sig um.
„En ég ætla sem sagt að spjalla næstu helgi, því það gefst svo vel að spjalla við fólk, ekki bara dæla í það lestrum. Ég er náttúrlega vön og hef gaman af samtalinu, því það er svo dásamlegt að hafa fengið að kljást við erfið veikindi og að líða betur, fá lyf og tól og tæki. Það er gott að geta talað um það og fara ekki í felur með sína erfiðleika. Þá verður þetta auðveldara ...“
– Já, fyrir alla.
„Akkúrat. Ætlarðu að senda mér þetta á Messenger?“
– Já.
„Ókei elskan, ég bíð spennt.“