Fasteignamartröðin fyrsta verk LA í vetur
Nýtt leikár Leikfélags Akureyrar hófst í gær með fyrsta samlestri á verkinu Fasteignamartröðin. „Um er að ræða nýtt og bráðfyndið samtíma verk sem frumsýnt verður þann 9. október og munu sýningar standa út nóvember,“ segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar (MAk). Verkið er eftir litháenska leikskáldið Gabrielé Labanauskaitė og var það valið besta erlenda leikritið í Þýskalandi árið 2021.
„Fasteignamartröðin er meinfyndinn samtímaspegill á raunveruleika ungs fólks. Verkið fjallar um það fáránlega ferðalag sem fylgir því að kaupa sér sína fyrstu eign,“ segir á vef MAk. „Eftir óvænt sambandsslit þarf Arnrún að finna sér þak yfir höfuðið, hún getur ekki flutt aftur í foreldrahús, líst illa á leigumarkaðinn og ákveður því að kaupa sína fyrstu íbúð. Við tekur grátbroslegt og fáránlegt ferðalag í gegnum frumskóg bankastarfsmanna, fasteignasala og lánardrottna.“
Með hlutverk Arnrúnar fer Urður Bergsdóttir en með önnur hlutverk fara þau Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jökull Smári Jakobsson og Vigdís Halla Birgisdóttir. Leikstjóri er Adolf Smári Unnarsson.