Fara í efni
Menning

Eyþór Ingi, Saint Pete og RAKEL tilnefnd

Eyþór Ingi Jónsson, Saint Pete (Pétur Már Guðmundsson) og RAKEL (Rakel Sigurðardóttir) hafa öll hlotið tilnefningu til íslensku Tónlistarverðlaunanna 2026. Verðlaunin verða afhent miðvikudagskvöldið 18. mars næstkomandi.

Í flokknum 'Lög og tónverk ársins' er Saint Pete tilnefndur í flokki hipphopp tónlistar fyrir lag sitt Súpermann. Plata Rakelar, a place to be, er tilnefnd fyrir plötu ársins í flokknum 'önnur tónlist'.

Plata Eyþórs Inga, XV, er tilnefd til verðlauna sem plata ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Einnig er platan tilnefnd fyrir bestu upptökustjórn ársins, en hún var í höndum Håkan Ekman og Anders Hannus. Eyþór var í ítarlegu viðtali fyrr á árinu þar sem mikið var fjallað um plötuútgáfuna. Hér má lesa viðtalið.

Hér er viðtal á akureyri.net við Saint Pete, eða Pétur Má Guðmundsson, frá 2024, þegar hann rauk fram á sjónarsviðið.

Rakel Sigurðardóttir er fædd og uppalin á Akureyri. Hún hóf fiðlunám sex ára gömul við Tónlistarskólann á Akureyri og jazzsöngnám síðar meir. Árið 2015 flutti hún til Reykjavíkur og hélt áfram tónlistarnámi við tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist þaðan vorið 2020.

Árið 2021 gaf Rakel frá sér sína fyrstu stuttskífu, Nothing Ever Changes og ári seinna gaf hún, ásamt tónlistarkonunum Salóme Katrínu og Söru Flindt (DK), út splittskífuna While We Wait, en platan hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunana sem plata ársins í fyrra.