Fara í efni
Menning

Eyrún Lilja Aradóttir er Ungskáld 2026

Rannveig Karlsdóttir, Sara Bjarnason og Kött Grá Pjé, sem skipuðu dómnefndina, standa hér aftan við Eyrúnu Lilju Aradóttur, Ungskáld 2026, og Katrínu Díu Gunnlaugsdóttur, en verk hennar urðu í 2. og 3. sæti.

Eyrún Lilja Aradóttir varð hlutskörpust í ritlistakeppni Ungskálda árið 2026 en verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Amtsbókasafninu á Akureyri mánudaginn 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu. Verðlaunin fékk hún fyrir smásögu sína sem ber heitið Sturtan. Katrín Día Gunnlaugsdóttir varð í öðru sæti með smásöguna Miðbæjar-Darri og hún varð einnig í því þriðja með verkið Þriðja augað.

Eyrún Lilja er fædd árið 2001 og hefur áður náð góðum árangri í keppninni. Hún sigraði einnig árið 2023 og hlaut þriðju verðlaun í fyrra. Þetta er því í annað sinn sem hún hlýtur fyrsta sætið og í þriðja sinn sem hún er í verðlaunasæti.

Fyrsta bók Eyrúnar Lilju væntanleg

Alls bárust 30 verk frá 15 höfundum í keppnina í ár og voru þau einstaklega fjölbreytt, að því er segir í frétt á vefsíðu Akureyrarbæjar. Öll verkin voru nafnlaus þegar dómnefnd fékk þau til umfjöllunar, til þess að fyllsta hlutleysis væri gætt við matið.

Eyrún Lilja las upp verðlaunasöguna við athöfnina á Amtsbókasafninu og sagði í ávarpi sínu að keppnin hefði verið sér mikil hvatning til að skrifa og að vettvangur sem þessi væri því afar mikilvægur. Hún greindi jafnframt frá því að hún hefði nýverið gert útgáfusamning við bókaútgáfuna Sölku og mætti búast við að fyrsta bók hennar kæmi út á næsta ári.

Dómnefnd ársins skipuðu Sara Bjarnason, skipuleggjandi Kveldúlfs tónlistarhátíðar og verkefnastjóri Gjörningahátíðarinnar A!, Kött Grá Pjé, tónlistarmaður, textasmiður og rithöfundur, og Rannveig Karlsdóttir, þjóðfræðingur og kennari. Anna Lovísa Arnarsdóttir sá um tónlistaratriði við verðlaunaafhendinguna á Amtsbókasafninu.

Vettvangur fyrir unga höfunda

Ungskáld er verkefni sem hefur það að markmiði að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Verkefnið hófst árið 2013 og er ritlistasamkeppnin haldin árlega. Ekki eru settar sérstakar skorður við efnistök eða lengd verkanna, en þau þurfa að vera á íslensku og frumsamin. Auk keppninnar er ungu fólki boðið upp á námskeið og ritlistakvöld þar sem það getur fengið leiðsögn, kynnst öðrum sem hafa áhuga á skrifum og lesið upp eigin verk.

Að Ungskáldaverkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg og atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.