Fara í efni
Menning

Eyrnakonfekt í Hofi á sunnudaginn

Á sunnudaginn verða flutt samsöngsverk eftir Þórunni Guðmundsdóttur á tónleikunum Eyrnakonfekt í Hofi. „Þórunn hefur getið sér gott orð fyrir bæði leikrit og óperur. Orðaeikir og glettni eru í fyrirrúmi á tónleikunum auk þess sem tónlistin er á léttum nótum en heillandi og falleg. Hópurinn hefur komið fram víða og verið afskaplega vel af þeim látið og oft af hlátri grátið,“ segir í tilkynningu.

Flytjendur: Björk Níelsdóttir sópran, Erla Dóra Vogler mezzzó-sópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Hafsteinn Þórólfsson baritón og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó.

Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00. Tónlistarfélagið nýtur stuðnings Menningarfélags Akureyrar, Menningarsjóðs Akureyrar og Tónlistarsjóðs, að því er segir í tilkynningu.