Fara í efni
Menning

Eva Hrund ráðin framkvæmdastjóri MAk

Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðislokksins, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar (MAk). Hún var formaður stjórnar félagsins frá 2020 þar til fyrr á þessu ári.

Eva Hrund er menntaður viðskiptafræðingur með áherslu á fjármál og stjórnun og með MLM nám í forystu og stjórnun. Hún starfaði um tíu ára skeið sem fjármála- og starfsmannastjóri hjá Lostæti ehf, hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 2014 en tilkynnti fyrr í vetur að hún gæfi ekki kost á sér til endurkjörs í vor.

Alls sóttu 16 manns um starfið og var umsóknarferlinu stýrt af Mögnum Ráðningum, að því er segir í tilkynningu frá MAk. „Eva Hrund hefur góða þekkingu á bæði rekstri og mannauðsmálum sem mun sannarlega nýtast vel í spennandi og krefjandi starfi framkvæmdarstjóra,“ segir Brynhildur Pétursdóttir formaður stjórnar Menningarfélagsins í tilkynningunni.

Eva Hrund tekur við starfinu af Þuríður Helgu Kristjánsdóttur sem sagði starfi sínu lausu í janúar. „Á sama tíma og stjórn Menningarfélagsins þakkar Þuríði Helgu fyrir farsælt samstarf og óskar henni velfarnaðar í nýjum ævintýrum býður stjórnin Evu Hrund innilega velkomna til starfa.“

Menningarfélag Akureyrar rekur Leikfélag Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, og Menningarhúsið Hof.