Menning
Erlingur Valgarðsson sýnir í Mjólkurbúðinni
04.04.2026 kl. 10:00
Erlingur Valgarðsson opnar í dag málverkasýningu í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélags Akureyrar í Listagilinu. Sýningin hefst kl. 15:00 og opið er til 18:00 í dag. Hún stendur til 12. apríl og opið er alla daga frá og með morgundeginum frá kl. 14:00 til 18:00.
Erlingur – alltaf kallaður Elli – er Akureyringur en brottfluttur fyrir mörgum árum.
Á sýningunni sem listmaðurinn kallar Útlínur og form/steinar, vinnur hann með form og útlínur steina „en þeir hafa spilað stórt hlutverk í málverkum hans í yfir 30 ár,“ segir í tilkynningu um sýninguna.
„Formin eru mjúk og bogadregin, þau vísa til þunga og kyrrðar og birtast frekar sem hugmynd en myndræn eftirlíking. Með því að einangra útlínur steina frekar en að sýna þá í heild er athyglinni beint að formi, rými og innbyrðis tengslum.“