Ennþá til miðar á tónleika Patti Smith
Nokkrir tugir miða eru ennþá óseldir á tónleika bandarísku listakonunnar Patti Smith og hljómsveitar hennar, sem haldnir verða í menningarhúsinu Hofi nk. þriðjudagskvöld (37 miðar þegar þetta birtist kl. 11 á sunnudagsmorgni). Hér er um fágætt tækifæri að ræða fyrir listunnendur en löngu er uppselt á tónleika hennar um helgina í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík.
Patti Smith er að nálgast áttrætt og er einn áhrifamesti listamaður sinnar kynslóðar; söngkona, lagasmiður, ljóðskáld og myndlistarkona. Hún sló í gegn með plötunni Horses árið 1975 og stimplaði sig þar inn í pönk-rokksenuna í New York með eftirminnilegum hætti. Plötur hennar eru komnar á annan tuginn og bækurnar ennþá fleiri. Hún hlaut t.d. bandarísku bókmenntaverðlaunin árið 2010 og var tekin inn í frægðarhöll rokksins árið 2007. Hún hefur einnig vakið athygli fyrir myndlist sína, þar á meðal ljósmyndir og innsetningar sem hafa verið sýnd víða um heim. Patti Smith er einnig ötul baráttukona fyrir mannréttindum og umhverfismálum.
Patti Smith hefur komið nokkrum sinnum áður til Íslands, síðast árið 2019, þegar hún kom fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice. Hún býr nú í New York þar sem hún heldur áfram að skrifa, flytja tónlist og birta reglulega efni á Substack, auk þess að vera mjög virk á Instagram.