Fara í efni
Menning

Embla flytur perlur frá barrokktímanum

Kvennakórinn Embla flytur perlur frá barrokktímanum – Stabat mater eftir Pergolesi og Gloria eftir Vivaldi – ásamt hljómsveit og einsöngvurum næsta laugardagskvöld á tónleikum í Glerárkirkju.

Flytjendur eru Kvennakórinn Embla, Barrokksveit Akureyrar og einsöngvarar eru Helena Guðlaug Bjarnadóttir, Erla Dóra Vogler og Sigrún Hermannsdóttir. Stjórnandi er Roar Kvam.

Miðasala verður við innganginn. Miðaverð er 5.000 krónur og posi verður á staðnum.

Í tilkynningu kemur fram að geisladiskur Kvennakórsins, Íslenskar söngperlur, verði til sölu við innganginn og kostar 3.500 kronur. Diskurinn kom út í lok árs 2022 og er ófáanlegur í verslunum.

„Pergolesi samdi Stabat mater við latneskt miðaldarljóð og fjallar verkið um sorg Maríu meyjar við krossfestingu sonar síns. Verkið var síðasta tónverk hans og er af mörgum talið hans besta verk,“ segir í tilkynningu.

„Gloria eftir Vivaldi er eitt vinsælasta kórverk allra tíma og var upprunalega samið fyrir blandaðan kór en verður hér flutt í útsetningu fyrir kvennakór og strengjasveit og orgel. Verkið er byggt á bæninni Gloria in excelsis Deo frá fjórðu öld.“