Fara í efni
Menning

Egill Logi Jónasson opnar sýningu á Leyni

Egill Logi Jónasson opnar í kvöld kl. 20 sýninguna Eins og bíll í Göngugötu á Leyni við Hafnarstræti. Egill Logi, sem býr og starfar á Akureyri, er „mynd- tónlistarmaður og peningakall,“ að því er segir í tilkynningu, einnig þekktur undir listamannsnafninu Drengurinn Fengurinn. Hann lauk námi frá Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2012 og BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2016.
 

„Egill vinnur á mörkum ólíkra listforma og nýtir meðal annars málverk, tónlist, myndbönd, skúlptúra og gjörninga í listsköpun sinni. Verk hans einkennast af frumlegri nálgun, tilraunagleði, húmor og óhefðbundinni tjáningu,“ segir í tilkynningu um sýninguna. „Hann er virkur þátttakandi í sjálfstæðu listalífi Akureyrar og einn af lykilaðilum listahópsins Kaktus í Listagilinu, þar sem hann hefur tekið þátt í að skapa vettvang fyrir sjálfstæða og óháða listamenn. Samhliða myndlistinni hefur hann verið afar afkastamikill í tónlistarsköpun og gefið út fjölda hljómplatna.“

Egill var bæjarlistamaður Akureyrar árið 2025 fyrir framlag sitt til menningarlífs bæjarins og fjölbreytta, framsækna listsköpun. Hluti tilkynningar um sýninguna sem opnuð verður í kvöld var eftirfarandi kveðskapur, með sömu yfirskrift og sýningin.

Eins og bíll í Göngugötu

Ég mæti í partí
eins og bíll á göngugötu
Segi alltof langa sögu og held svo fyrir þér vöku
Fokka í endurvinnslunni
set matarleifar í plastið
Kaupi skemmtara í Hirðinum
og spila svo á draslið