„Ég hef alltaf ætlað að verða söngkona“
„Ætli ég hafi ekki sungið frá því ég dró andann fyrst,“ segir Akureyringurinn Eik Haraldsdóttir, sem heldur tónleika í Hofi á morgun, fimmtudaginn 19. mars. Þar kemur hún fram ásamt stórsveit, en athygli vekur að þar verða einungis flutt djasslög sem Eik samdi fyrir útskriftartónleika sína úr Listaháskóla Íslands.
Eik er 23 ára en hefur komið víða fram þrátt fyrir ungan aldur, bæði sem söng- og leikkona. „Þegar ég var krakki var ég alltaf að dansa og syngja eða í leikhóp með öðrum krökkum. Ég byrjaði í dansi fjögurra ára hjá Steps og fór svo í tónlistarskóla og í kór þegar ég var átta ára,“ segir hún. Eik lærði á óbó áður en hún hóf söngnám og það fallega blásturshljóðfæri er aldrei fjarri að hennar sögn.
„Það hefur alltaf verið mikil tónlist í kringum mig. Bæði heima og í skólunum hvort sem það var á Pálmholti eða í kórnum hjá Elínborgu í Lundarskóla. Ég fór líka í barnakórana í Akureyrarkirkju, söng þar í mörg ár hjá Sigrúnu Mögnu sem var mjög lærdómsríkt. Mig dreymdi reyndar um að læra á þverflautu en það var ekki laus kennari, svo við mamma hlustuðum á Pétur og Úlfinn og ég féll fyrir óbóinu. Mér fannst og finnst óbóið æðislegt hljóðfæri og hef gripið í það þegar það hentar lögum.“

Eik var valin Jólastjarnan 2013 og kom því fram á Jólagestum Björgvins, þeim miklu hátíðartónleikum í Laugardalshöll. Hér er hún með Sigríði Thorlacius á æfingu fyrir tónleikana.
Framan af var Eik ekki síður í hlutverki leikkonu en söngkonu. Hún kom fram í tveimur verkum í Freyvangi og hjá Leikfélagi Akureyrar í Gullna hliðinu, Pílu pínu og Vorið vaknar. Eik telst til að hún hafi tekið þátt í 20 leikritum. „Mér fannst og finnst skemmtilegt að leika. Ég var svo heppin að komast strax að í leikfélagi MA og tók þátt í sýningum öll menntaskólaárin. Reyndar ekki á sviði á síðasta árinu mínu. Þá var ég formaður LMA og við settum upp söngleikinn Hjartagull sem var byggður á tónlist 200.000 Naglbíta. Því miður var Covid svo við fengum ekki að sýna eins oft og við hefðum gert.“

Eik og Kristjana Stefánsdóttir, söngkennari hennar í Listaháskólanum. Eik útskrifaðist þaðan með BA próf, bæði í skapandi tónlistarmiðlun og af rytmískri kennarabraut.
Þegar spurt er hvort ekki hafi komið til greina hjá henni að verða leikkona, svarar Eik:
„Það kitlaði alveg að læra leiklist en þegar til kastana kom þá var ástríðan fyrir tónlistinni sem réði för. Ég hef alltaf ætlað að verða söngkona. Eftir að ég kláraði grunnpróf á óbó vildi ég skipta yfir í söngnám og byrjaði hjá Heimi Ingimarssyni haustið 2015, þá 13 ára og tók svo framhaldspróf í rytmískum söng í nóvember 2020, þá var ég farin að læra hjá Þórhildi Örvarsdóttur.“
Fór að læra djass fyrir slysni
Eik segir tímann í Tónlistarskólanum á Akureyri hafa verið frábæran. „Ég lærði svo rosalega mikið af kennurunum og af því að koma fram á öllum skólatónleikunum.“
Hún kveðst í raun hafa farið að læra djass tónlist fyrir slysni. „Það var hægt að læra klassískan eða rytmískan söng og ég valdi rytmískan því 13 ára ég vildi ekki vera óperusöngkona. Ég lærði svo hægt og rólega að kynnast jazz tónlist og ég varð ástfangin af henni. Ég elska hvað jazz tónlist er frjálsleg og hvað hún getur gefið öllum sitt eigið tungumál. Það er líka í raun það sem ég elska við tónlist. Maður getur tjáð allar tilfinningar sínar í tónum.“

Eik lærði á óbó í Tónlistarskólanum á Akureyri þar til hún var nógu gömul til að læra söng. Óbóið er oft ekki langt undan, t.d. á tónleikunum þar sem myndin til hægri er tekin.
Það vakti mikla athygli þegar Eik var valin Jólastjarna Björgvins Halldórssonar árið 2013 og fékk að syngja á tvennum tónleikum í troðfulltri Laugardalshöll með ýmsum stórstjörnum. „Það var auðvitað ótrúlegt ævintýri að taka þátt í þessu og syngja með fólki sem maður leit og lítur upp til eins og Sigríði Thorlacius, Eivöru, Röggu Gísla og John Grant. Eftir á dálítið spes þar sem ég var bara 11 ára!“ segir hún. „Það hjálpaði kannski að vera svona ungur og algjörlega óttalaus, en svo hafði ég líka alveg komið fram áður þó það væri ekki fyrir framan svona marga. En mér fannst þetta ekkert mál.“
Eftir útskrift úr MA vorið 2021 hélt Eik til Kaupmannahafnar í þriggja mánaða söngnám hjá Complete Vocal. Kom til greina að halda áfram námi í Kaupmannahöfn? „Já, mig langaði að halda áfram á kennarabraut hjá Complete Vocal Institute en mér fannst líka nauðsynlegt að kynnast tónlistarsenunni í Reykjavík, kynna mig þar og skapa tengsl,“ segir hún, en eftir dvölina í Danmörku lá leiðin í Listaháskóla Íslands.

Lygasögur! Fyrir fimm árum gáfu Eik og Egill Andrason út plötuna Lygasögur, með eigin frumsömdum lögum; þar er m.a. lag þar sem óbóið er í lykilhlutverki. Plötuna má finna á spotify. Til hægri: Eik í Söngkeppni framhaldsskólanna 2021 þar sem hún keppti fyrir Menntaskólann á Akureyri.
Eik útskrifaðist með tvö BA próf úr Listaháskóla Íslands, annars vegar í skapandi tónlistarmiðlun vorið 2025 og af rytmískri kennarabraut í janúar 2026. „Ég hef alltaf verið svo lánsöm að hafa frábæra kennara. Í LHÍ voru mínir aðalleiðbeinendur söngkonan Kristjana Stefánsdóttir, Gunnar Ben og Sigurður Flosason saxafónleikari með meiru. Ég fékk líka kennslu og innblástur hjá Kjartani Valdimars, Matta Helmstock og ótal mörgum. Námið leiddi mig áfram í að semja mína eigin tónlist og í sumar ákvað ég að á útskriftartónleikunum mínum af kennarabrautinni yrði bara tónlist eftir mig og útsett af mér. Þetta var smá klikkun því ég flýtti útskriftinni í leiðinni um eina önn og var líka að vinna! En þetta tókst og hélt ég tónleika með níu manna hljómsveit í Salnum í Kópavogi í nóvember þar sem flutt voru átta lög eftir mig.“
Heimavöllurinn Hof
Eik heldur nú tónleika í Hofi og líklega má segja að þar sé hún á heimavelli. Hún kom oft fram í húsinu á nemendatónleikum meðan hún var í Tónó, eins og hún kallar Tónlistarskólann á Akureyri, tók þátt í leiksýningunni Pílu Pínu, Eik söng í Hofi í með Óskari Péturssyni og Ragga Bjarna og þá tók hún þátt í covid tónleikaröð Hofs með Friðrik Ómari. Í fyrra héldu Eik og kærasti hennar Guðjón Steinn Skúlason tónleika á Listasumri en á morgun ætlar Eik að flytja eigin tónlist. „Mig langað að flytja efnisskrána hér heima á Akureyri og fékk styrk frá Listasjóðnum Verðandi til að halda þessa tónleika í Hofi. Ég hlakka mikið til að flytja tónlistina mína hér heima og vonast til að fólk komi til að hlusta.“

Eik á útskriftarfónleikunum frá Listaháskóla Íslands í Salnum í Kópavogi, þar sem flutt voru átta lög eftir hana.
Með Eik á tónleikunum verða sannkölluð stórsveit en hana skipa: Ludvig Kári Forberg á píanó og víbrafón, Alexander Grybos á gítar, Hlynur Sævarsson á bassa, Andri Eyfjörð á trommur, Guðjón Steinn Skúlason á sópran- og tenór saxófón, Michael Weaver á alto saxófónn, Tobias Þórarinn Matharel á trompet, Lára Rún Keel Kristjánsdóttir á trompet og Einar Bjarni Ramos Björnsson á básúnu.
Tónleikarnir á morgun eru sannarlega spennandi og skemmtilegt verkefni en hver skyldu vera næstu skref hjá tónlistarkonunni ungum, Eik Haraldsdóttur?
„Í sumar er planið að taka efnið upp og vonandi gefa út plötu á næsta ári. Annars var ég að kaupa íbúð með kærastanum mínum í Vesturbænum í Reykjavík, vinn í Hagaskóla á daginn og tek að mér söngverkefni og raddþjálfun hér og þar þess á milli. Ég er búin að söngstýra söngleikjum hjá Verzló síðustu tvö árin og svo er ég með ýmsar hugmyndir að tónlistarverkefnum. Draumurinn er að gefa út meiri tónlist, halda fleiri tónleika og syngja eins mikið og ég get.“