Fara í efni
Menning

Efla skapandi hugsun og ritlist ungmenna

Rithöfundarnir Gunnar Helgason og Kamilla Einarsdóttir sem sögðu ungmennunum til. Mynd: Aðalbjörg Bragadóttir.

Um 20 ungmenni sátu ritlistasmiðju Ungskálda sem fram fór í húsnæði VMA á laugardaginn. Þar naut hópurinn leiðsagnar rithöfundanna Gunnars Helgasonar og Kamillu Einarsdóttur.

  • Ungskáld er verkefni á Akureyri sem gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.
  • Verkefnið hófst árið 2013 og er það eina sinnar tegundar á landinu.
  • Staðið er fyrir ritlistakeppni þar sem veitt eru peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin.
  • Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að vera á íslensku.

Næst á dagskrá Ungskálda 2022 er ritlistakeppni og búið er að opna fyrir innsendingar. Síðasti skiladagur er 16. nóvember nk.

Í framhaldi af ritlistakeppninni verður kaffihúsakvöld Ungskálda haldið á LYST í Lystigarðinum þriðjudagskvöldið 6. desember kl. 20. Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist. „Frábært tækifæri til að hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk. Kaffi, kakó og kökur í boði fyrir gesti,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Úrslit í ritlistasamkeppni Ungskálda 2022 verða tilkynnt 8. desember.

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Allar nánari upplýsingar hér