Menning
Drykkir innbyrðis gefa út 11 laga plötu í dag
18.09.2026 kl. 17:00
Hljómsveitin Drykkir innbyrðis gaf í dag 11 laga plötu sem ber nafn hljómsveitarinnar. Hún er bæði á Spotify og YouTube og verður fáanleg á vínil í næsta mánuði. Sveitin var stofnuð 1986, starfaði í fjögur ár en lagðist í áratuga dvala þar til hugmynd kviknaði á síðasta ári að taka upp þráðinn og á síðustu mánuðum sendu strákarnir frá sér þrjú lög, sem öll er á plötunni.
Lögin 11 eru öll eftir hljómsveitarmeðlimi, níu gömul en tvö laganna eru ný. Rúnar Örn Friðriksson, söngvari hljómsveitarinnar, semur alla texta. Aðrir í sveitinni eru Eiríkur S. Jóhannsson gítarleikari, Ingvi Rafn Ingvason, sem leikur á trommur og annað slagverk, Viðar Garðarson bassaleikari og Haukur Eiríksson sem leikur á hljómborð. Gestaleikari var Páll Veigar Ingvason, sonur Ingva trommara; hann lék á kúabjöllu í laginu Hver er?
Lögin þrjú sem þegar voru á Spotify eru Á vit feðranna, Hvítur sandur og Framtíðin. Hljómsveitin er ánægð með viðtökurnar en alls hefur verið hlustað 16.000 sinnum á lögin. Önnur lög á plötunni eru Í gegnum tíðina, Ísmolar, Aldrei gleyma þér, Hver er?, Dagur líður hjá, Trú fyrr og nú, Lítill fugl og ASAP.
Upptökur fóru fram í Hofi á þessu ári og því síðasta. Haukur Pálmason tók upp og masteraði, sem svo er kallað; sá um síðustu skrefin í hljóðvinnslunni áður en tónlistin er gefin út.
Mynd á plötuumslagi gerði Pétur Steinar Hallgrímsson en Karl Örvarsson hannaði umslagið.
- Frétt akureyri.net í apríl: