Fara í efni
Menning

Drykkir innbyrðis dreifa hvítum sandi

Mynd: Þorgeir Baldursson

Hljómsveitin Drykkir innbyrðis hefur sent frá sér nýtt lag - Hvítur sandur, sem finna má bæði á Spotify og YouTube.

Hljómsveitina skipa Rúnar Örn Friðriksson, söngvari, Viðar Garðarsson sem leikur á bassa, Haukur Eiríksson hljómborðsleikari, gítarleikarinn Eiríkur S. Jóhannsson og Ingvi Rafn Ingvason trommari.

Drykkir innbyrðis var stofnuð á Akureyri í ársbyrjun 1986, tók þátt í Músíktilraunum í apríl það ár og hafnaði í öðru sæti, eins og akureyri.net hefur rifjað upp. Hljómsveitin starfaði til ársins 1990,en lagðist þá í dvala allt þar til að sú hugmynd kviknaði á seinasta ári að taka aftur upp þráðinn! 

Fimmmenningarnir hafa unnið að upptökum á plötu sem gefin verður út í haust og löngu er ákveðið að formlegir útgáfutónleikar verða á Græna hattinum 31. október.

  • Smellið á myndina hér að neðan til að hlýða á nýja lagið.