Davíð Máni gefur út tvö ný lög í dag
Það var einfaldlega orðið of langt síðan Davíð Máni sendi síðast frá sér nýja tónlist. Í það minnsta fannst honum það sjálfum og líklega eru margir aðrir á sama máli. Þótt ný plata sé á lokametrunum í hljóðverinu gat hann ekki beðið lengur og ákvað því að gefa út tvö ný lög sem urðu til úr eldri hugmyndum sem höfðu legið í skúffunni. Nýju lögin koma á streymisveitur í dag, 31. júlí.
„Mér hreinlega leiddist biðin eftir að gefa út nýja tónlist. Það var komið meira en ár síðan ég gaf út eitthvað að ráði síðast. Við erum vissulega að leggja lokahönd á nýju plötuna, en ég varð bara að gera eitthvað á meðan,“ segir Davíð Máni við blaðamann akureyri.net.
Síðasta útgáfa hans var jólaplata með ábreiðum, en að þessu sinni ákvað hann að fletta í gegnum gamlar demóupptökur. „Ég fór að gramsa í gömlum upptökum sem ég átti heima og fann tvö lög sem mér fannst gríðarlega efnileg. Þá ákvað ég bara að láta verða af þessu.“
Ekki hefðbundið upptökuferli
Til að koma lögunum í endanlegt form hafði hann samband við Hallgrím Jónas Ómarsson, eða Halla, sem vann einnig með honum að fyrstu plötunni The Mancave Tapes. „Við hittumst í sumarfríinu mínu og tókum þessi tvö lög upp. Útkoman er hreint út sagt stórkostleg. Það er svo gaman að finna að maður er að vaxa sem tónlistarmaður og þora að prófa nýja hluti í hljóðverinu.“
Davíð segir að hann hafi tekið mun virkari þátt í hljóðblönduninni en áður. „Ég kom með fleiri hugmyndir inn í ferlið, sérstaklega varðandi gítarhljóðið á öðru laginu. Ég notaði magnaraherma við upptökurnar og ef þú spyrð mig hef ég aldrei hljómað betur,“ segir hann með sannfæringu.
Hann spilaði sjálfur inn alla gítara, bassa, trommur og söng, en Hallgrímur sá um upptökur og hljóðblöndun. Upptökuferlið er þó ekki alveg hefðbundið. „Ég fer eiginlega öfuga leið miðað við flesta. Ég byrja alltaf á gíturunum, tek rytmagítarana yfirleitt tvisvar, svo kemur bassinn, þá trommurnar og söngurinn alveg síðast. Það skemmtilega er að ég var með kvef þegar ég tók upp sönginn, en einhvern veginn passaði tónninn bara enn betur við stemninguna í lögunum,“ segir Davíð Máni.
A- og B-hlið upp á gamla mátann
Lögin bera titlana God's The Devil og The Entity og Davíð lítur á þau sem eins konar tvöfaldan síngúl. „Ég vil kalla þetta síngúl á gamla mátann, þar sem var A- og B-hlið. Mér finnst B-hliðin ekkert síðri og ég tel bæði lögin mjög sterk. Nú ætla ég bara að þrýsta eins og ég get á að fá þau í útvarpsspilun.“
En hvernig eru lögin ólík? „God's The Devil er miklu tilfinningalegra lag. The Entity er þyngra og hentar jafnvel betur í ræktinni,“ útskýrir hann.
Textarnir eru þó það sem stendur honum næst. „God's The Devil varð til eftir að ég missti tvo vini. Ég velti fyrir mér að ef Guð sé raunverulegur, hvort hann sé þá ekki bara djöfullinn, því í réttlátari veröld ættu svona hlutir ekki að gerast. Svo snerti ég líka á eigin vanlíðan á tímabili þar sem ég þurfti að líta í eigin barm og gera betur fyrir sjálfan mig. Það eru alls konar tilfinningar í þessu lagi.“
The Entity sé annars eðlis. „Það lag er lauslegra textalega séð. Þar er fókusinn meira á undirspilinu, en textinn fjallar um hvernig brestir manns koma alltaf aftur upp á yfirborðið. Spurningin er hvort maður leyfi þeim bara að grassera eða reyni að breyta einhverju – og hvort maður sé þá ekki samt fastur í sama vítahringnum.“
Davíð segist ekki hafa áhuga á að fegra textana. „Ég er ekkert að fela mig á bak við rósrauð gleraugu. Mér finnst textar eiga að vera hreinskilnir og koma frá eigin sál og hjarta,“ segir hann í einlægni.
Leyfði listamanninum að túlka tónlistina
Forsíðumynd útgáfunnar er eftir unga listamanninn Odd, sem starfar undir nafninu oddur_art á Instagram og hannaði einnig umslag fyrstu plötu Davíðs. „Ég vissi eiginlega ekkert hvað ég vildi. Ég sendi honum bara lögin og bað hann að teikna það sem kæmi upp í hugann. Mér finnst hann hafa náð myrku stemningunni í báðum lögunum ótrúlega vel, enda er hann gífurlega hæfileikaríkur,“ segir Davíð Máni og er verulega sáttur við útkomuna.
Davíð ætlar ekki að sitja auðum höndum eftir útgáfuna. Á næstu vikum mun hann stíga á svið með tónleikahljómsveit sinni þar sem nýju lögin verða meðal þess sem flutt verður.
„Við spilum í Slímstöðinni 29. ágúst og svo á Græna Hattinum 24. september. Ég hlakka sérstaklega til seinni tónleikanna því þeir eru á 25 ára afmælisdaginn minn. Það verður líka frábær upphitun með Hugarró og Unknown Fantasy, þannig ég held að þetta verði virkilega skemmtilegt kvöld,“ segir Davíð Máni að lokum.
- Hér eru nýju lögin hans Davíðs Mána á Spotify - þau eru einnig komin á Youtube