Davíð Máni á Græna í kvöld - og nýtt lag
Það er sannkallaður tímamótadagur hjá tónlistarmanninum Davíð Mána í dag. Hann fagnar 25 ára afmæli sínu, gefur út nýtt lag og stígur í kvöld í fyrsta sinn á svið á Græna hattinum undir eigin nafni.
Lagið heitir Brain Sludge og er fyrsta lagið af væntanlegri plötu Davíðs sem stefnt er að að gefa út í desember. Hann segir tengslin milli lagsins og titilsins ekki endilega augljós við fyrstu hlustun en merkingin skýrist eftir því sem hlustað sé betur á lagið.
Textinn varð meðal annars til eftir atvik sem átti sér stað fyrir um tveimur árum þegar mjög náinn ættingi Davíðs lenti í lífshættulegu atviki „Maður var pínu hræddur og samdi textann með þeirri hugsun: Hvernig ætli þeim líði?“ segir Davíð.
Hrárri hljóðheimur á nýju plötunni
Nýja lagið gefur jafnframt ákveðna vísbendingu um hvert Davíð stefnir með nýju plötuna. Hljóðblöndunin sé hrárri en á fyrri útgáfum hans og hann hafi meðvitað viljað fara í einfaldari og ódýrari framleiðslu. „Ég vildi prófa að gera meira budget-friendly og hráa plötu og sjá hvernig það kæmi út. Ég held að útkoman sé bara mjög fín.“
Platan er að mestu tekin upp af Davíð og vini hans. Daníel Hrafn úr SÓT sér um hljóðblöndun og pabbi Davíðs, Jói Bjarki, sá um masteringu. Stefnt er að því að gefa út lög með reglulegu millibili þar til platan kemur út í desember.
Lengi langað að spila á afmælisdaginn
Tónleikarnir í kvöld eru ekki síður persónulegt verkefni fyrir Davíð. Hann hefur lengi haft áhuga á því að halda tónleika á afmælisdeginum sínum og ákvað í byrjun árs að láta verða af því. „Mig hefur alltaf langað að performa á afmæli mínu og hugsaði með mér að ég vildi prófa að spila á Græna undir eigin nafni.“
Davíð hefur áður komið fram á Græna hattinum með fyrrverandi hljómsveit sinni, Miomantis, meðal annars ásamt Dream The Name, Ara Orrasyni og SÓT. Að standa einn að tónleikunum sé þó allt önnur upplifun. „Að gera þetta einn er pínu scary í það fyrsta, útaf ég veit ekkert hvað ég er að setja mig út í.“
Hann verður þó ekki alveg einn í kvöld því hann verður með hljómsveit með sér. Þar að auki sjá tvær akureyrskar hljómsveitir, Hugarró og Unknown Fantasy, um upphitun og því má búast við fjölbreyttu og rokkuðu tónleikakvöldi.
Vill sjá Akureyringa styðja grasrótina
Davíð leggur áherslu á mikilvægi þess að tónleikagestir styðji við grasrótina í tónlistinni og sæki viðburði þar sem staðbundnir tónlistarmenn koma fram. „Við erum með gríðarlega öfluga tónlistarmenn undir yfirborðinu sem eiga skilið sömu athygli og stærstu nöfnin í senunni,“ segir hann.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 í kvöld á Græna Hattinum og miða má nálgast á vef Græna hattsins.