Fara í efni
Menning

Dagskrá í tilefni 150 ára afmælis Kristínar

Í dag eru 150 ár frá því að skáldkonan Kristín Sigfúsdóttir fæddist á Helgastöðum í Saurbæjarhreppi, nú Eyjafjarðarsveit. Af því tilefni hefur Flóra menningarhús í Sigurhæðum á Akureyri í samstarfi við Maríu Pálsdóttur leikkonu og Eyjafjarðarsveit skipulagt útiviðburð klukkan 16 í dag við Helgastaði, sem nú er eyðibýli.
 
Helgastaðir er um 30 kílómetrum framan Akureyrar, austan Eyjafjarðarár.

„Kristín átti síðar á ævinni einmitt heima í Sigurhæðum á Akureyri í nokkur ár ásamt fjölskyldu sinni. Kristín varð uppúr 1920 mjög vinsæll og ástsæll rithöfundur og landsþekkt fyrir leikrit sín, minningarljóð og smásögur. Vinsældir verka Kristínar og virðing gagnvart henni sjást vel á því að frá um 1930 og til dánardags árið 1953 hlaut Kristín skáldalaun frá Alþingi,“ segir í tilkynningu frá Flóru, menningarhúsi.
 
 
„Kristín stendur fyrir þær kynslóðir sem þurftu að skemmta sér sjálf og líka mennta sig sjálf, en hún er líka gott dæmi um það hversu mikilvæg hvatning úr umhverfinu er til ritverka og listsköpunar. Annars kenndi Kristín sjálfri sér bæði að lesa og skrifa og að lesa erlend mál. Kristín byrjaði mjög ung að semja leikrit, sem hún dreif fólk í að leika í með sér, þar sem hún leikstýrði einnig. Þessi frumverk hennar hafa ekki varðveist, þar sem hún brenndi handritin að uppsetningu lokinni. En eftir Kristínu liggur annars fjöldi verka og var ritsafn hennar gefið út árið 1945, en bókmenntafræðingar okkar hafa líka fjallað um Kristínu m.a. sem þá konu sem féll í gleymsku en bíður eftir því að verða enduruppgötvuð.“
 
  • 150 ára afmæli Kristínar
    Staðsetning: Helgastaðir, Eyjafjarðarsveit
    Tími: Mánudagur 13. júlí kl. 16.00
    Fram koma: Mars Baldurs skáld, María Pálsdóttir leikkona, Teitur Baldursson verðlaunahafi og Kristín Þóra staðarhaldari í Sigurhæðum.
 


Helgastaðir í Saurbæjarhreppi.