Fara í efni
Menning

Dagskrá í tali og tónum um Kristján frá Djúpalæk

Kristín Heimisdóttir og Sigurður J. Jónsson, Jonni, flytja dagskrá í tali og tónum um Kristján frá Djúpalæk í Davíðshúsi við Bjarkarstíg á Akureyri í dag. Dagskráin verður flutt tvisvar, kl. 14.00 og 17.00.
 

„Kristján frá Djúpalæk var einkar snjallt ljóðskáld sem orti fjölda þekktra ljóða og dægurlagatexta, t.d Sjómannavalsinn (Það gefur á bátinn við Grænland). Hann var einnig mikilvirkur þýðandi og á ekki lítinn þátt í vinsældum leikrita Torbjörns Egners á Íslandi sem þýðandi Dýranna í Hálsaskógi og Kardimommubæjarins nú eða Galdrakarlsins í Oz,“ segir í tilkynningu frá Minjasafninu.

„Kristján samdi einnig ævintýrið og ljóðin um Pílu pínu sem Ragga Gísla og Heiðdís Norðfjörð sömdu undurfögur lög við. Í þessari dagskrá fá minna þekkt kvæði að njóta sín og öðlast líf í nýjum lögum Kristínar og Jonna. Leitast verður við að fanga tíðarandann sem ríkti við gerð kvæðanna og öll áhersla lögð á notalegheit, samveru og nánd. Á milli laga flytja þau fróðleik um ljóðin og skáldið Kristján frá Djúpalæk. Dagskráin er framhald vel heppnaðra tónleika sem Kristín og Jonni fluttu á eyðibýlinu Bjarmalandi, í landi Djúpalækjar, í ágúst 2023.“

Miðaverð er 1.500 krónur. Viðburðurinn er styrktur af uppbyggingarsjóði SSNE.