Fara í efni
Menning

Dagskrá í Fagraskógi í dag tileinkuð Davíð

Davíð Stefánsson og móðir hans, Ragnheiður Davíðsdóttir.
Á þessu ári eru 130 ár frá fæðingu þjóðskáldsins Davíðs Stefánssonar í Fagraskógi á Galmaströnd í Eyjafirði. Af því tilefni verður dagskrá í Fagraskógi í dag, laugardaginn 21. júní, undir yfirskriftinni HEIMA; dagskrá tileinkuð Davíð Stefánssyni skáldi.
 
Dagskráin hefst klukkan 17:00. Rifjaðar verða upp sögur af Davíð á heimaslóðum, Kristjana Arngrímsdóttir og Örn Eldjárn flytja lög við ljóð Davíðs, og Rakel Hinriksdóttir les uppáhalds ljóðin og segir frá kynnum sínum af ljóðum Davíðs.
 
Fagriskógur er í Hörgársveit, 24 kílómetrum norðan Akureyrar vestan megan fjarðar.
 

Bærinn Fagriskógur á Galmaströnd í Hörgársveit, liðlega 20 kílómetrum norðan Akureyrar.