Dagar bíla og flugs – hinsegin og sælu
Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Listinn verður uppfærður jafnóðum og fréttist af nýjum viðburðum.
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní stendur auðvitað upp úr í þessari og viðburðir sem tengjast honum. Bíladagar verða á sínum stað, margir viðburðir verða á Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra, í Hörgársveit verða Sæludagar að ógleymdum Flugdegi flugsafnsins á laugardag. Þá er að venju mikið um að vera á Græna hattinum og þar hefst gamanið strax í kvöld með Söngsal að hætti menntskælinga.
Tónleikar
- Söngsalur MA – Græna hattinum í kvöld, mánudag 15. júní kl. 21. Jónsi, Sigurður Helgi konsertmeistari og Villi vandræðaskáld halda Söngsal fyrir júbílanta MA. „Viðburður sem enginn sannur MA-ingur má missa af. Söngsalur eins og hann gerist bestur,“ segir í kynningu.
- Helgi og hljóðfæraleikararnir – Græna hattinum, þriðjudag 16. júní kl. 21. Fyrstu tónleikar þessarar goðsagnakenndu og lífseigu sveitar í óvenjulangan tíma. „Sumarsólstöðum fagnað með hefðbundnum hætti. Margvíslegir glaðningar á boðstólum fram eftir kveldi. Komdu fagnandi með eða án,“ segir í kynningu.
- Dóra og Döðlurnar – Græna hattinum, fimmtudag 18. júní kl. 21. „Stelpuhljómsveitin Dóra & Döðlurnar svara kallinu í sumar og ferðast um landið með tónleika. Þar verða flutt öll vinsælustu lög sveitarinnar, eins og; Gríptu mig, Leyndarmál og Gatnamót,“ segir í kynningu.
- Hunang, Kalli Örvars og Lúxusdívurnar – Græna hattinum, laugardag 20. júní kl. 21. „Akureyringum boðið upp á alvöru diskó/dans partý. Glimmer, gleði og geggjað stuð!“ segir í kynningu.

Helgi og hljóðfæraleikararnir koma fram á Græna hattinum þriðjudagskvöldið 16. júní.
Viðburðir
- Þjóðhátíðardagurinn 17. júní - Formleg dagskrá í og við Lystigarðinn frá kl. 13. Blómabíllinn ekur um bæinn frá kl. 11 og skrúðganga leggur af stað frá gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti kl. 12:30 áleiðis í Lystigarðinn.
- Bíladagar 2026 – Fjölbreytt dagskrá dagana 17.-20. júní í umsjá Bílaklúbbs Akureyrar. Bílasýning í Boganum 17. júní, drift, sandspyrna og götuspyrna, svo eitthvað sé nefnt.
- Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra – Fjöldi viðburða dagana 18.-21. júní. Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra, ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin hátíðinni í Hrísey standa að hátíðinni.
- Flugdagur Flugsafns Íslands – Laugardaginn 20. júní frá kl. 13 á Akureyrarflugvelli. Í ár verður Landhelgisgæsla Íslands í öndvegi í tilefni af 100 ára afmæli stofnunarinnar.
- Sæludagar í Hörgársveit – Dagana 19.-21. júní verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá um alla Hörgársveit þar sem íbúar, félög og fyrirtæki sameinast um að skapa notalega hátíðarstemningu fyrir öll.
- Gönguvika Ferðafélags Akureyrar - Ókeypis gönguferðir af ýmsu tagi, dagana 21.-26. júní. Fyrsta gangan er miðnæturganga á Miðvíkurfjall 21. júní og sr. Svavar Alfreð Jónsson leiðir fossagöngu í Þverárgili í Eyjafjarðarsveit daginn eftir.
- Óskastund Kristínar – Fimmtudag 18. júní kl. 17 í Flóru, Sigurhæðum. 150 ára fæðingarafmæli skáldkonunnar Kristínar Sigfúsdóttur (1876-1953) frá Helgastöðum í Eyjafirði er fagnað með veglegri dagskrá. Enginn aðgangseyrir og öll velkomin.
- Sumarsmiðjur á Amtsbókasafninu fyrir 7-12 ára – Dagana 10.-19. júní kl. 9-11. Amtsbókasafnið á Akureyri býður krökkum á aldrinum 7- 12 ára að koma á safnið og nýta ímyndunaraflið í allskonar skemmtilegum smiðjum. Smiðjurnar eru á milli klukkan 9 og 11 og er krökkunum frjálst að koma og fara að vild allt eftir áhuga og úthaldi.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu – Alla miðvikudaga og fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 út júní er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.

Bílasýningin í Boganum á 17. júní er óaðskiljanlegur hluti Bíladaga að venju.
Listsýningar
- Listamenn í vinnslu – Deiglan, Listagili. Mahaut Ingiríður Matharel sumarlistamaður, Hafey Hvítfeld og Aðalheiður Jóna Kolbeins Liljudóttir halda málverkasýningu í Deiglunni. „Þessi sýning er algjört bland í poka. Þetta er fyrsta sjálfstæða listasýningin okkar og ákváðum við því að leyfa okkur að sýna hverjar við erum án þess að festa okkur um of í stærra þema. Þó reyndum við að hafa svolítið samræmi og notuðumst við við þrjá meginliti: bláan, bleikan og grænan, í verkunum okkar,“ segir í kynningu. Sýningin er opin helgina 19.-21. júní.
- Logi Gautason – Ég ætla að rotna. Leyni, Hafnarstræti 95. Á sýningunni má sjá ný málverk unnin í akríl á striga. Verk Loga sækja jafnt í hið hversdagslega sem hið dularfulla og skapa myndheim þar sem ólíkar hugmyndir, stemningar og vísanir rekast saman. Sýningin er opin til 19. júní
- Hédna – Menningarhúsinu Hofi. Sýning sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri. Viðfangsefnin fjölbreytt þar sem tekist er á við tilveru í flóknum heimi með aðferðum myndlistar. Sýniningin er opin til 16. ágúst 2026.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Zimoun – Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Saga Íslands: 2. hluti – Eiríkur Páll Sveinsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Guð launi þér – Úlfur Logason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Hughrif - Litir - Form I – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Sýning um heilagan fugl – Örlygur Kristfinnsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Andlegar verðmætavindur Magnúsar – Magnús Helgason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- S-I-L-I-C-A-0-3 – Hulda Rós Guðnadóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Opnun ársins – Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.

Skáldkonan Kristín Sigfúsdóttir frá Helgastöðum í Eyjafirði fæddist árið 1876 og 150 ára fæðingarafmælis hennar verður minnst í Flóru næstkomandi fimmtudag 18. júní kl. 17.
Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.