„But Hey“ – Nýtt lag frá Davíð Mána

Akureyrski tónlistarmaðurinn, Davíð Máni hefur gefið út annað lagið af fyrstu sóló plötu sinni The Mancave Tapes, sem væntanleg er á streymisveitur þann 11. júlí. Lagið heitir But Hey og er textinn á ensku.
But Hey er lag sem Davíð samdi á unglingsaldri eins og flest lögin á væntanlegri plötu. Hann segir að líkja megin lögunum við einhvers konar blöndu og pönki og gruggi – sem á ensku er kallað er grunch. Textinn var unnin í samstarfi við Enok Evuson á sínum tíma, en Davíð breytti honum áður en upptökuferlið hófst.
„Textann má túlka á allskyns mismunandi hátt en fjallar í grunnin um fólk sem er samferða manni í lífinu en sér ekkert nema sína eigin leið, og þar af leiðandi, ekki hægt að vinna með því fólki,“ segir í tilkynningu.
Davíð segist hafa átt sér þann draum að taka upp sólóplötu síðan hann heyrði lagið Mind Mischief eftir Tame Impala árið 2023 og draumurinn rættist þegar hann hóf upptökuferli ásamt fyrrverandi gítarkennara sínum, Hallgrími Ómar Jónassyni. Davíð tók þar upp ellefu lög og spilaði sjálfur á rythma gítar, bassa og trommur, og sá einnig að mestu um gítarsóló og söng sjálfur.
Á fyrra laginu sem Davíð Máni gaf út, Pool Of Sorrow, sem einnig er aðgengilegt á streymisveitum, kom fram gestasöngvarinn Ari Orrason en Davíð Máni er einmitt þekktur fyrir að spila með Ara og sem meðlimur hljómsveitarinnar Miomantis.