Brasilísk/íslenskur bræðingur í Hofi
Það verður brasilísk stemning í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi næstkomandi sunnudag þegar tónlistarverkefnið Frá Fjöllum til Favelas verður á dagskrá Tónlistarfélags Akureyrar. Tónleikarnir hefjast klukkan 16.
Fram koma Guito Thomas, söngur og gítar, og Rodrigo Lopes á trommur en þeir eru báðir búsettir í Ólafsfirði. Með þeim eru Guðni Bragason á rafbassa, sem býr á Húsavík, og feðginin Ágústa Jenný Forberg söngkona og Ludvig Kári Forberg á píanó, sem eru búsett á Akureyri.
Hópurinn ætlar að bjóða upp á brasilíska tónlist frá árinu 1950 og allt fram til dagsins í dag. Á efnisskránni verða bæði þekktar perlur og annað efni, eitthvað sem ætti að höfða til allra.
Tónleikarnir eiga meðal annars rætur að rekja til námsferðar til Brasilíu sumarið 2025. Þá fór hópur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til Nazaré undir fararstjórn Rodrigo Lopes og tók þátt í 4. Brazilian Music Camp. Sú ferð varð að sögn aðstandenda tónleikanna innblástur að áframhaldandi samstarfi og tónlistarflutningi hér heima. Heitið Frá Fjöllum til Favelas vísar einmitt til þess hvernig brasilísk tónlistarhefð og tónlistarlíf á Norðurlandi mætast í verkefninu.
Í fréttatilkynningu er lofað léttum og skemmtilegum tónleikum sem allir ættu að geta notið. „Það verður ekki skylda að sitja kyrr á þessum tónleikum og pláss til að standa á fætur og dilla sér,“ segir í tilkynningunni.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð Tónlistarfélags Akureyrar og haldnir í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar. SSNE, Tónlistarsjóður og Akureyrarbær eru styrktaraðilar verkefnisins.