Boreal Screendance hátíðin sett í kvöld
Vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival hefst í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri í kvöld, föstudaginn 23. október. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2020 og býður að þessu sinni upp á 16 vídeódansverk frá 13 löndum, auk sérstakra sýninga og lifandi dansverka.
Boreal fer fram á mörkum hausts og vetrar og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem vettvangur fyrir danslist og margmiðlunarlist á Norðurlandi eystra. Hátíðin var fyrst haldin í Mjólkurbúðinni en hefur nú færst í aukana og verður dagskráin í ár í Listasafninu á Akureyri, Mjólkurbúðinni, Deiglunni og Kaktusi.
Markmið hátíðarinnar er að efla danslistir og margmiðlunarlist með áherslu á listræn gæði og alþjóðlegt samstarf. Þar mætast vídeódansverk frá ólíkum menningarheimum og verk eftir íslenskt listafólk. Boreal er eina árlega hátíðin sinnar tegundar á Íslandi og hlaut hún hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar árið 2021.
Sýningar fram í nóvember
Stærstur hluti hátíðarinnar fer fram í Listasafninu á Akureyri og stendur frá 23. október til 15. nóvember. Þar verða sýnd vídeódansverk frá 13 löndum. Í Mjólkurbúðinni verður samansafn verka frá Íslenska dansflokknum til sýnis frá 28. október til 10. nóvember. Í Deiglunni verða tveir sérstakir sýningardagar: 31. október verða sýnd fimm valin vídeódansverk og 7. nóvember verður sýnt verkið Heima III eftir Önnu Richardsdóttur og Örnu Valsdóttur.

Opnun með spunadansi
Stofnandi og listrænn stjórnandi Boreal er Yuliana Palacios, samtímadansari og danshöfundur. Hún flutti frá Mexíkó til Íslands árið 2016 og hefur síðan unnið sjálfstætt að eigin verkum, oft í samstarfi við listafólk hér á landi og erlendis. Á síðustu árum hefur hún í auknum mæli unnið með vídeódans.
Opnunarathöfn Boreal hefst klukkan 20 í kvöld í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri. Eftir ávörp verður flutt spunadansverk eftir þýska samtímadansarann Jonathan Reimann.
Aðgangur að öllum sýningum hátíðarinnar er ókeypis.