Fara í efni
Menning

Boðið upp á fjölbreytta list utan meginstraums

Menningarhátíðin Mannfólkið breytist í slím hefst á Akureyri fimmtudag 16. júlí, og stendur til laugardagsins 18. júlí. Að hátíðinni stendur listasamsteypan MBS, sem hefur skipulagt hana frá árinu 2018 með það að markmiði að efla grasrótar- og jaðarmenningu á Norðurlandi. Í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar kemur fram að enginn aðgangseyrir er á viðburði hennar, heldur er gestum frjálst að greiða eftir getu.

MBS á rætur að rekja til ársins 2010 og hefur frá upphafi staðið að sjálfstæðri tónlistarútgáfu og fjölmörgum tónlistarviðburðum. Samsteypan rekur einnig Slímstöðina á Akureyri, sem er æfinga- og upptökuaðstaða fyrir tónlistarfólk.

Hátíðin leggur sérstaka áherslu á að skapa vettvang fyrir listafólk utan meginstraumsins, með áherslu á flytjendur af Norðurlandi. Skipuleggjendur segja markmiðið vera að byggja upp menningarlíf á forsendum svæðisins, þar sem fjölbreytni listforma og jafnt kynjahlutfall flytjenda eru í fyrirrúmi.

Þótt tónlist sé meginuppistaða dagskrárinnar hefur gjörningalist einnig skipað stóran sess frá upphafi. Þá hefur hátíðin skapað sér sérstöðu með því að bjóða upp á viðburði sem liggja á mörkum tónlistar, myndlistar og sviðslista.

Kött Grá Pje er einn af þeim sem komu fram á Mannfólkið breytist í slím í fyrra.

Eitt af einkennum Mannfólkið breytist í slím er að hún fer aldrei fram á sama stað tvisvar. Í ár verður hátíðin haldin í um þúsund fermetra rými við Dalsbraut 1, þar sem áður var öflug iðnaðarstarfsemi. Aðstandendur leggja mikla áherslu á að umbreyta hráum iðnaðarrýmum í lifandi menningarvettvang með innsetningum sem sameina myndlist, textíl, myndbandslist og framúrstefnulega hönnun.

Með þessu fyrirkomulagi hefur hátíðin skapað sér sérstakan sess í menningarlífi Norðurlands. Ólíkt mörgum öðrum tónlistarhátíðum á landsbyggðinni byggir dagskráin að mestu á listafólki af Norðurlandi sem kemur fram á heimavelli. Aðstandendur telja það styrkja sjálfstætt menningarlíf á svæðinu og skapa grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu grasrótarstarfs.

Á hátíðinni í ár koma fram 18 atriði sem endurspegla mikla breidd í tónlistarlífinu. Dagskráin spannar allt frá indírokki og dauðarokki yfir í suður-ameríska kúmbíu, tilraunakennda raftónlist og tekknó. Markmiðið er að breyta hinu gamla iðnaðarhverfi í lifandi miðpunkt neðanjarðarmenningar á Akureyri þessa þrjá daga í júlí.

Hátíðarsvæði er opnað kl. 19:00 öll kvöld - gengið inn að aftan - og dagskráin hefst kl. 20. Mælt er með að leggja bílum við Glerártorg eða á plani fyrir framan Dalsbraut 1.

Listafólk á Mannfólkið breytist í slím 2026:

  • Basilisk
  • Baukur
  • BKPM
  • Chögma
  • Conjunto Media Luna
  • Cyber
  • Davíð Máni
  • Hekla Björt Helgadóttir (Verndari MBS 2026)
  • Krassoff
  • LiteFun
  • Ronja
  • Skelkur í bringu
  • Sólför
  • The Cheap Cuts
  • Urðun
  • Venus Volcanism
  • Volruptus & In3dee
  • Þorsteinn Kári