Boaz Yosef Friedman sýnir á Leyni
Boaz Yosef Friedman opnar sýninguna Three’s a Crowd á Leyni, Hafnarstræti 95 á Akureyri, í dag fimmtudaginn 10. september klukkan 20. Sýningin stendur í tvær vikur.
Friedman, sem fæddur er árið 1994 og býr í Reykjavík, vinnur með ólíka miðla á borð við málverk, teikningu, texta, hluti og innsetningar. Verk hans byggja á rannsókn á því hvernig merking verður til og hvernig við lesum og túlkum það sem fyrir augu ber.
Í verkum sínum vinnur Friedman meðal annars með klisjur og viðteknar hugmyndir og setur þær í nýtt og stundum óhugnanlegt samhengi. Kunnugleg form og aðferðir geta þannig tekið á sig óvæntar myndir og mörkin milli ólíkra listmiðla verða óljósari.

Friedman er útskrifaður frá Listaháskólanum í Düsseldorf og Slade School of Fine Art. Á sýningunni á Leyni gefst gestum tækifæri til að kynnast verkum hans og þeirri nálgun sem hann hefur þróað á mörkum málverks, hluta, texta og innsetningar.
Í fréttatilkynningu segir að Leyni sé vínveitingastaður, sýningarstaður og tónleikastaður sem hafi á skömmum tíma skapað sér sérstöðu sem menningarþenkjandi bar og vettvangur fyrir ólíkar listgreinar. „Með sýningum, tónleikum og viðburðum leitast Leyni við að skapa rými þar sem list, menning og mannlíf mætast í afslöppuðu og óhefðbundnu umhverfi,“ segir í tilkynningunni.