„Blómin eru tákn fyrir líf, orku og gleði“
Guðbjörg Ringsted opnar í dag kl. 14.00 málverkasýninguna „Hring eftir hring“ í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri í Listagilinu. Á sýningunni eru einungis ný verk og viðfangsefnið er útsaumsblóm af íslenskum kvenþjóðbúningum, sem Guðbjörg hefur unnið með lengi.
Listakonan segist í fyrstu hafa verið mjög trú munstrunum, hafi kynnt sér allt efni sem hún komst yfir varðandi þau en smám saman fór hún að vinna frjálsar með efnið og þróa það áfram. „Það má ef til vill segja að blómin öðlist sitt eigið líf á myndfletinum og að þau fari sínar eigin leiðir. Oft er þetta einhvers konar dans blómanna á myndfletinum og einhver frelsisþrá; eitt skýst af leið eða sker sig úr á annan hátt,“ segir hún.
Hring eftir hring vísar annars vegar til hringja í nokkrum verkanna og hins vegar til hringrásar listar og handverks í áranna rás, segir Guðbjörg.
„Ég vinn gjarnan í seríum, geri nokkur verk sem standa vel saman og mynda eina heild. Málverkin eru óður til blómanna í náttúrunni og handverkinu. Fyrir mér eru blómin tákn fyrir líf, orku og gleði.“
Guðbjörg útskrifaðist árið 1982 úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands, grafíkdeild, og hefur unnið að myndlist síðan þá. Fyrst með grafíkina, síðan teikningar en akrýlmálverkið er nú allsráðandi. Þetta er 37. einkasýning Guðbjargar en samsýningarnar eru rúmlega fimmtíu.
- Sýningin stendur í rúma viku, til sunnudagsins 6. desember. Sýningin hefst í dag kl. 14.00 sem fyrr segir og opið er til kl. 18.00. Alla aðra daga verður opið á milli klukkan 14.00 og 17.00.