Fara í efni
Menning

Bjössi Thor á Græna hattinum í kvöld

Björn Thoroddsen gítarleikari verður með tónleika á Græna hattinum kl. 21 í kvöld, fimmtudagskvöld, þar sem hann ætlar að leika úrval laga sem hafa verið í uppáhaldi hjá honum gegnum tíðina. Og segja sögur. Hann verður ekki einn á ferð því með honum leika Jón Rafnsson bassaleikari og Sigfús Örn Óttarsson trommuleikari. Björn lofar skemmtilegri kvöldstund.

Blaðamaður akureyri.net sló á þráðinn til Björns og spurði hann á hverju tónleikagestir myndu eiga von í kvöld. „Við ætlum að fara svolítið yfir gítarsöguna og spila mörg af mínum uppáhaldslögum gegnum tíðina,“ svarar Björn. „Þetta eru Bítlalög, Jimi Hendrix, Eagles og alls kyns lög sem hafa haft áhrif á mig alveg frá því ég var smápolli,“ bætir hann við en tekur líka fram að þeir muni ekki bara renna gegnum lögin. „Já, ég ætla líka að segja sögur um það hvernig þetta tengist allt og reyna að vera skemmtilegur,“ segir Björn og glottir gegnum símann. Aldrei að vita nema eitthvað verði látið flakka sem bara má segja frá í lokuðu rými!

Að segja sögur milli laga gerir góða tónleika enn betri - og Bjössi lofar góðum sögum!

Rokk, rafmagn og power

Björn segir að strákarnir sem verði með honum séu alveg frábærir. Fúsi Óttars trymbill er Akureyringum auðvitað að góðu kunnur, enda fæddur hér og uppalinn og sleit húðum m.a. með Baraflokknum frá 14 ára aldri. Jón bjó líka um tíma á Akureyri og blaðamaður glopraði því upp úr sér við Björn að hafa reynt að læra á bassa hjá Jóni í Tónlistarskólanum á Akureyri á síðustu öld – en ekki orðið nægilega ágengt! Það skrifast þó algerlega á nemandann, sem hefði líklega mátt sinna ástundun og æfingum betur.

Nóg um það. Björn segir að þeir félagarnir ætli að rokka í kvöld. „Ég hef verið svona mest viðloðandi djass í gegnum árin en þetta verður rafmagnað. Þetta verður power, þetta er rokk,“ segir Björn með áherslu og blaðamaður sér Jón Rafnsson illa fyrir sér handfjatla kontrabassann sinn mjúklega, dreyminn á svip, við þær aðstæður. Enda verður kontrabassinn alls ekkert með í för. „Já, Jón verður með rafmagnsbassa – honum er skipað að koma með rafmagnsbassa,“ segir Björn glettnislega, þegar blaðamaður færir þessar áhyggjur sínar í tal. Og þá ætti allt að vera skothelt.

„Þetta verður rafmagnað. Þetta verður power, þetta er rokk,“ segir Bjössi.

Björn segir markmiðið að skapa skemmtilega kvöldstund. „Við spilum lög eins og Stairway to Heaven, Hotel California, Hey Joe og eitthvað af Bítlalögum. Sambland af hinu og þessu. Rokk, blús, djass og popp,“ segir Björn. „Og svo koma skemmtilegar sögur inn á milli,“ bætti hann við að lokum og við vorum sammála um að tónleikar verði alltaf skemmtilegri þegar góðar sögur fylgja með.

Eins og áður sagði hefjast tónleikarnir kl. 21 í kvöld. Miða má nálgast á vefsíðu Græna hattsins og við innganginn.