Fara í efni
Menning

Hinn bjarti Beethoven í Hofi og heima

Því er víða fagnað um þessar mundir að 250 ár eru síðan þýska tónskáldið Ludwig van Beethoven fæddist. Tónlistarfélag Akureyrar heldur afmælisveislu í Hofi í kvöld af þessu tilefni; tónleika þar sem verkin á efnisskránni einkennast af „birtu, gleði og krafti og tilheyra því tímabili í lífi Beethovens áður en hann fór að missa heyrn að ráði,“ eins og segir í tilkynningu.

Tónleikarnir, sem hafa yfirskriftina Hinn bjarti Beethoven, hefjast klukkan 20 og á undan verður stutt kynning á verkunum þar sem farið verður í stef og uppbyggingu verkanna fyrir þá sem áhuga hafa. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum en athygli er vakin á því að panta þarf miða, vegna þess að fjöldatakmarkanir eru á viðburðinn. Tónleikunum verður einnig streymt beint á mak.is á netinu.

Flytjendur eru Ásdís Arnardóttir sellóleikari og bæjarlistamaður Akureyrar, Helena Guðlaug Bjarnadóttir sópran, Michael Jón Clarke baritón, Michael Weaver klarinettuleikari og píanóleikararnir Jón Sigurðsson, Lidia Kolosowska og Þórarinn Stefánsson, ásamt nemendum Ásdísar.

Efnisskrá:
Sonata í A-dúr opus 68 fyrir selló og píanó

Dúett úr Töfraflautunni eftir Wolgang Amadeus Mozart - Bei Männern, welche Liebe fühlen

Sjö Tilbrigði um stef úr Töfraflautunni Wo O 46 fyrir selló og píanó

Tríó fyrir klarinett, selló og píanó í B-dúr, opus 11

Óðurinn til gleðinnar úr 9. sinfóníunni

Tónleikarnir eru hluti af Beethovenhátíð sem Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir í samvinnu við Menningarfélag Akureyrar. Tónlistarsjóður og Akureyrarbær styrkja tónleikana. Enginn aðgangseyrir, sem fyrr segir, en frjáls framlög eru vel þegin, segir í tilkynningu.