Fara í efni
Menning

Björg opnar sýninguna Landsleg á morgun

Björg Eiríksdóttir opnar sýningu í Mjólkurbúðinni á Akureyri á morgun, laugardaginn 24. júlí. Sýningin stendur til 2. ágúst og er opin frá 14 til 17. „Titill sýningarinnar „Landsleg“ er forn mynd hugtaksins landslag og vísar til þess þegar við skynjum umhverfið bara til að skynja og finnum fyrir tengingu við það líkt og þegar við vorum fóstur í móðurkviði, í fullkomnu samræmi við umhverfið. Þar vöfðust skynjarnir hver um aðra og mynduðu mynstur sem fylgir okkur. Að opna fyrir þetta skynsvið er ein leið til að skilja betur að við erum hluti af vistkerfi og erum háð því,“ segir í hugleiðingum Bjargar í tilkynningu.

Verkin á sýningunni eru unnin síðastliðinn vetur en þá var Björg við meistaranám við myndlistardeild háskólans í Portó í Portúgal. Hún lauk MA í listkennslu frá HA vorið 2017, diploma í myndlist frá Myndlistarskólanum á Akureyri 2003 og B Ed frá KHÍ 1991. Hún starfar við myndlist samhliða kennslu myndlistargreina við VMA, hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og er þetta ellefta einkasýning hennar. Hún var bæjarlistamaður Akureyrar 2019-20.