Birtíngur – Magnað verk sem ristir djúpt
„Leikararnir eru magnaðir. Orkan sem þau sendu yfir okkur í bylgjum örvæntingar, ástríðu og lífsþrá, er svakaleg og ég finn ennþá seiðing af henni innra með mér daginn eftir,“ segir Rakel Hinriksdóttir í pistli þar sem hún fjallar um Birtíng sem Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gærkvöldi.
Um er að ræða glænýja leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar leikstjóra á þessari heimsfægu sögu Voltaires. „Mér finnst það bókstaflega vera þrekvirki, að taka þessa frægu sögu og þýða hana upp á nýtt úr ensku, og búa til þessa leikgerð,“ segir Rakel.
„Leikverkið er ótrúlegt. Ég veit eiginlega ekki hvað annað er hægt að segja. Frásagnargleðin og kómíkin er alltumlykjandi, atburðarásin er hröð, frumsamin tónlist Þorvalds Bjarna Þorvaldssonar er stórkostleg og flutt beint á sviðinu af 10 hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Búningarnir og leikmunirnir eru eitthvað ótrúlegt listaverk af öðrum heimi ...“
Pistill Rakelar: Innra með okkur öllum er Birtíngur